fasteignasölur.is
Lindasíða 51 íbúð 201
1 af 23

Um eignina

EIGNAVER 460-6060

Lindasíða 51 íbúð 201   ** Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega **
Falleg 3ja herbergja endaíbúð með sér inngangi á efri hæð og með stórum suðursvölum í Síðuhverfi. Falleg útsýni.

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur, önnur er innan íbúðar. 

Forstofa er með flísum á gólfi. Góður fataskápur 
Eldhús, hvít sprautulökkuð innrétting með flísum á milli skápa og eyja með helluborði. Nýlegur bakaraofn. Úr eldhúsinu er hurð út á hellulagðar svalir til suðurs.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með stórum gluggum og parketi á gólfi.  
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc, walk-in sturtu og opnanlegum glugga.
Þvottahús er með flísum á gólfi, bekk með skolvask og efri skápum. 
Geymslur eru tvær, ein innan íbúðar og ein sem er utangengt í. Geymsla innan íbúðar er með flísum á gólfi, stórum skáp og hillum. Hin geymslan er í sameignlegu rými á bakvið bílskúrinn og er hún skráð 3,2 m² að stærð. 

Annað
- Rúmgóðar hellulagðar svalir til suðurs, skráð 47,7 m² að stærð á teikningum.
- Fallegt útsýni
- Hitalagnir eru í stiga og að forstofuhurð. 
- Stutt í leik- og grunnskóla, Norðurtorg verslunarmiðstöð og ýmsa þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is





 

Lindasíða 51 íbúð 201

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð88,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.990.000 kr.675 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2268112Fasteignamat62.300.000 kr.Brunabótamat56.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑