fasteignasölur.is
Norðurás 2
Opið hús 1. nóv. kl. 13:00–13:30
1 af 26

Um eignina

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir 2-3 herbergja íbúð að Norðurási 2 í Reykjavík fastanúmer 204-6170. Egnin er samkvæmt þjóðskrá 73,4 fermetrar auk 7,9 fermetra geymslu í kjallara. Eignin er því 81,3 fm.
Íbúðin er björt 2-3 herbergja íbúð á efri hæð auk herbergis og fataherbergis í risi.


Nánari lýsing
Komið er inn í opið rými þar sem er forstofa, stofa, borðstofa og eldhús.
Forstofa er með fatahengi og gólf er með harðparketi.
Eldhúsið er með góðum innréttingum og harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar, harðparket á gólfi, gengt er úr stofu út á stórar suðursvalir.
Svefnherbergi er rúmgott og bjart með góðum skápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og sturtuklefa.
Á efri hæð er svefnherbergi, fataherbergi og skrifstofuaðstaða, þar eru korkflísar á gólfi. Einnig er gott geymslupláss undir súð.
Í kjallara  er sameiginleg sauna fyrir stigaganginn og rúmgóð sérgeymsla og er hún ekki inni í fermetrafjölda eignar.

Húsið var múrviðgert og málað fyrir tveimur árum og þak lagfært fyrir 10 árum.

Eignin er mjög snyrtileg í grónu hverfi. Stutt er í verslun og þjónustu svo sem skóla, matvöruverslun, heilsugæslu og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali í síma 824-0610, tölvupóstur stella@fmg.is

Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu sölumat þér að kostnaðarlausu. Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.

https://www.facebook.com/fmg.is/
www.fmg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp. 

Norðurás 2

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð73,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
67.900.000 kr.925 þ./m²
Byggingarár1985FasteignanúmerF2046170Fasteignamat59.250.000 kr.Brunabótamat45.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSpöngin 11, 112 ReykjavíkSími575-8585

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑