fasteignasölur.is
Öldugrandi 11
1 af 24

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir skemmtilega íbúð við Öldugranda. Útgengt á stóran pall úr stofu. Stutt í verslanir, sund og aðra þjónustu.
Tilvalin fyrstu kaup.

Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 56,3 fm. 
Nánari upplýsingar hjá Gerði í síma 788-7705 eða á gerdur@trausti.is  


Nánar um eignina:
Rúmgott anddyri með góðum skáp. Parket á gólfi.
Eldhús með hvítri nýlegri innréttingu. Span helluborð og háfur. Bakaraofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Flísar fyrir ofan borðplötu. Parket á gólfi.
Rúmgóð stofa/borðstofa. Gengið er út á stóran pall úr stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi með góðum skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga. Baðkar og snyrtileg innrétting með handlaug. Tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi. 
Sérgarður er fyrir framan pall eignar.
Franskir gluggar eru í öllum rýmum eignar.

Sérgeymsla í sameign.

Endurbætur og viðhald sem farið hefur verið í undanfarin ár:
Klárað að skipta um heitavatns- og neysluvatnslagir árið 2026. Settur forhitari sem hreinsar/síar kalk.
Ný blöndunartæki á baði.
Skipt um ofna eignar árið 2026
Byggður pallur við eign árið 2021
Skipt um báru á þaki 2020
Eldhús tekið í gegn árið 2019
Stigagangur tekinn í gegn 2019
Athugasemdir sem komu fram við skoðun:
Móða er í einhverjum glerjum
Filma í baðherbergi orðin upplituð
Virkt og gott húsfélag

Um er að ræða sæta íbúð á rólegum stað í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is eða Gerður B. Pálmarsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 788-7705 eða á netfanginu gerdur@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Öldugrandi 11

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð56,3 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
59.900.000 kr.1.064 þ./m²
Byggingarár1987InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2023942Fasteignamat55.950.000 kr.Brunabótamat37.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑