Um eignina
Húsið er staðsett í u.þ.b. 10 mínutna fjarlægð frá Egilsstöðum. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er timburhús, hæð og svefnloft byggt árið 2008, hæð 51.4 m², svefnloft 21.1 m², skráð flatarmál 54.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag: Anddyri, alrými með stofu, eldhúsi og forstofu, tvö herbergi, baðherbergi, geymsla og svefnloft.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |
Nánari lýsing:
Anddyri er opið við alrými, harðparket á gólfi, þaðan liggur stigi upp á svefnloft, gluggi er á svefnlofti.
Alrými með stofu, eldhúsi og forstofu, harðparket á gólfi, tvöfaldur skápur er í forstofu, útgengt er út á timburverönd úr stofu.
Eldhús, innrétting, eldavél, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, borðkrókur.
Herbergi I, harðparket á gólfi.
Herbergi II, harðparket á gólfi, veggfast rúm.
Baðherbergi, dúkur á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, salerni og sturta, handklæðaofn og gluggi.
Geymsla, harðparket á gólfi.
Innbú fylgir með bústaðnum utan persónulegra muna.
Úlfsstaðaskógur 37 er sumarhús/heilsárshús, timburhús á steyptum undirstöðum, gólf er timburgólf. Þak er timburþak klætt með járni. Undirneglingu vantar í þakskyggni.
Gluggar og hurð eru úr timbri. Timburverönd u.þ.b. 43.4 m² samkvæmt skráningu, umlykur húsið á alla vegu, heitur pottur er á verönd, skjólveggir eru við heitan pott.
Lóð er gróin að mestu leyti náttúrulegur lággróður, birki, móar og lyng, malarbílaplan er við húsið, pláss fyrir tvær bifreiðar. Rotþró er á lóð.
Lóðin er eignarlóð 4.074,0 m² að stærð, í skipulögðu sumarbústaðalandi í Úlfsstaðaskógi.
Samkvæmt greinargerð og skilmála, Úlfsstaðir Fljótsdalhéraði.
Stærð húsa skal vera á bilinu 25-90 brúttó m². Þau skulu vera einnar hæðar með einföldu risi og byggð úr timbri. Skjólveggi skal nota sparlega, ekki er heimilt að byggja girðingar innan svæðis. Á lóðinni skulu vera bílastæði fyrir a.m.k. tvo bíla. Ekki er heimilt að að flytja inn á svæðið fjölærar plöntur sem geta sáð sér út og raskað náttúrulegu gróðurfari þess. Hjólhýsi skúra og önnur slik mannvirki er ekki heimilt að hafa á svæðinu.
Smellið hér fyrir Deiliskipulag Frístundabyggð í Landi Úlfsstaða
Smellið hér fyrir skráningu eignar í landeignaskrá land númer 199367.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 231-6132. Úlfsstaðaskógur 37, Múlaþing.
Stærð: Sumarbústaður 54.0 m².
Brunabótamat: 36.850.000 kr.
Fasteignamat: 28.950.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 29.500.000 kr.
Byggingarár: 2008.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
01.0101 Íbúð 51.4 Brúttó m². 01.0102 Svefnloft 21.1 Brúttó m². 01.0103 Verönd 43.4 Brúttó m².
Landnúmer 199367. Sumarbústaðaland 4.074,0 m²
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala
ÚLFSSTAÐASKÓGUR 37
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























