fasteignasölur.is
Hlíðargata 33
1 af 22

Um eignina

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir, s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir  löggiltur fasteigna- og skipasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Hlíðargata 33, Neskaupstað. Hátún.
Um er að ræða timburhús á steyptum kjallara byggt 1905. Húsið hefur verið múrhúðað að utan (forskalað) og hefur múrhúðin nýlega verið endurnýjuð..
Eigninni fylgir bílskúr byggður úr timbri ca. 1971 og hefur hann nýlega verið gerður upp að utan.
Þak hússin er nýlegt. 
Að innan hefur húsið allt verið endurbætt á smekklegan hátt.
Komið er inn í litla forstofu með flísum á gólfi.
Þar fyrir innan er ágætt hol og gangur og þar er lúga niður í kjallarann og stigi upp í risið.
Eldhúsið hefur verið gert upp á smekklegan hátt og við hlið þess og opið á milli er lítil stofa með 2 gluggum í suður.
Gott svefnherbergi sem einnig er með 2 gluggum í suður er líka á hæðinni ásamt rúmgóðu þvottahúsi og stóru flísalögðu baðherbergi og er opið á milli þvottahúss og baðherbergis.
Mjór en ágætur stigi liggur upp í rishæðina en þar er opið rými við stigann og 2 misstór herbergi en bæði ágæt.
Kjallarinn virðist þurr og snyrtilegur og er með lítilli lofthæð. Kynditæki eru í kjallaranum en þar er einnig gott geymslupláss. Innangengt er í kjallarann um steyptan stiga.

Hlíðargata 33

740 Neskaupstaður
TegundEinbýlishúsStærð147,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
38.000.000 kr.258 þ./m²
Byggingarár1905InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2169219Fasteignamat36.100.000 kr.Brunabótamat61.280.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÚtkaupstaðarbraut 1, 735Sími893-1319

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑