Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðská Íslands alls 189,7 fm að stærð sem skiptist þannig að neðri hæðin er 60.3 fm, garðskálinn er 14.5 fm, efri hæðin er 80.9 fm og bílskúrinn/aukaíbúð er 27.7 fm + 6.4 fm geymsla/herbergi, samtals alls er aukaíbúð því 34.1 fm.
Neðri hæð, gengið er beint inn á aðalhæð hússins af bílaplani.
Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Hol með flísum á gólfi.
Gestasnyrting með glugga, snyrtileg innrétting og flísalagt í hólf og gólf.
Eldhús er opið við stofuna með fallegri innréttingu, efri og neðri skápar, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, eyja með granítborðplötu og flísar á gólfi. ,
Stofa/borðstofa mjög rúmgott og bjart rými með fallegu parketi.
Garðskáli sem í dag er nýttur sem sjónvarpsstofa með parketi á gólfi. Útgengt er út úr garðskálanum út á stóra verönd með heitum potti, útigeymslu og skjólvegg. Möguleiki er á að útbúa útisturtu.
Efri hæð, steyptur fallegur stigi með parketi liggur upp á efri hæð hússins.
Stigapallur/hol rúmgott með parketi á gólfi. Útgengt er út á suður svalir úr holinu.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Útgengt er út á norður svalir úr herberginu.
Svefnherbergin þrjú eru öll rúmgóð með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, gluggi, snyrtileg innrétting, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og flísalagt í hólf og gólf. Áður var sturtuklefi á baðherbergi þar sem þvottavél er núna.
Geymsluloft er yfir hluta efri hæðarinnar sem nýtist vel.
Bílskúr og geymsla er í dag aukaíbúð með sér inngangi.
Forstofa með flísum á gólfi.
Stofa og eldhúsaðstaða er opið rými með parketi á gólfi.
Herbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, gluggi, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi.
Lóðin er í góðri rækt.
Fyrir framan húsið er stórt hellulagt bílastæði.
Á lóðinni eru tvennar útigeymslur, önnur lokuð og hin hálf lokuð.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Brattakinn 3
Staðsetning
Allar 57 myndir
Upp ↑























































