fasteignasölur.is
Kjarralda 1B
1 af 5

Um eignina

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

RAÐHÚS Í BYGGINGU VIÐ Kjarralda 1B, 850 Hella
Um er að ræða miðjuíbúð í fjögurra íbúða raðhúsi í byggingu.  Ásett verð miðast við fullbúna íbúð miðað við neðangreinda skilalýsingu.  Einnig er mögulegt að fá íbúðirnar afhentar tilbúnar undir tréverk að öðru leyti en því að eftir er að setja upp milliveggi og sparsla.

Skilalýsing 

Lóð og Teikningar:
Lóðin skilast grófjöfnuð en gert er ráð fyrir grasþökum.  Gert er fyrir að bílastæði og göngustígur að húsi verði lögð hellulögn og möl.  Allar teikningar liggja inn á vef sveitafélagsins.

Sökklar: 
Sökklar gerðir samkvæmt teikningu.  Járnabinding er 2x k12 efst og neðst í sökkli, einföld 6mm járnamottugrind og k10 kambstál í tengijárnum við plötu. Einangrun á innanverða sökkulveggi er 16kg/75mm plasteinangrun.  Steypa er af gerðinni C25/30.

Botnplata:
Einangrun undir plötu er 24kg/ 100mm plasteinangrun.  Járnabinding er k10 c/c 25. Steypa af gerðinni C25/30.  Botnplata er fínslödduð og svo þurrslípuð fyrir gólfefni.

Lagnir:
Skolp og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu.  Húsið er hitað upp með hefðbundinni ofnalögn.  Inntök eru staðsett í vaskahúsi.

Rafkerfi:
Um er að ræða hefðbundið raflagnakerfi þ.e. huldar lagnir lagðar í steyptum veggjum/þaki eru lagnir í rörum í veggjum/loftum. Rofar og tenglar verða innfelldir 10 -16A. Ljósum verður almennt staðstýrt í herbergjum. Gert er ráð fyrir rafhleðslu við hús.

Útveggir:
Útveggir eru forsteyptar samlokueiningar úr járnbentri steinsteypu með einangrun milli steypulaga. Ytra byrði er með sléttri stáláferð.

Veggir á milli íbúða:
Brunaveggur er forsteyptur innveggir 150 cm á milli íbúða.

Þak:
Þakplatan er staðsteypt ofan á forsteyptar filegran loftaplötur, yfir kemur rakavarnarlag og EPS einangrun sniðskorin með 2.5% halla að niðurföllum, meðalþykkt 220mm. Þakið er varið með PVC viðurkenndum þakdúk, B(roof) (t2). Einangrun og PVC dúk er haldið niðri með fargi af möl (t=80-100mm)með kornastærð 60-80mm

Gluggar og hurðir:
Gluggar og hurðir eru frá Skanva,  hvítir að lit, timbur/ál.

Loftræsikerfi:
Loftræsing sé samkv. gr. 10.2.5 í byggingareglugerð. Loftræsing verði almennt um opnaleg fög. Gluggalaus rými verða loftræst með vélrænni loftræsingu útblástur fer um túðu í gegn um þak. Útsog frá eldhúsi sé að lámarki 30l/c. Útsog úr baðherbergjum sé að lámarki 15l/c og útsog úr þvottahúsi sé amk. 20l/c.

Opinber gjöld:
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. Gatnagerð, byggingaleyfisgjald og holræsigjald.  Inntaksgjöld rafmagns, hita og vatnsveitu eru greidd. Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir)

Millivegir:
Léttir innveggir eru blikkgrindarveggir, einangraðir með steinull, klæðning í a.m.k. flokki 2, veggir uppfylli kröfur samkvæmt hljóðvistarflokki C í byggingareglugerð.

Nánari lýsing:
Glæsilegar fjögurra herbergja raðhúsíbúðir.  Íbúðirnar skiptist í forstofu, opið alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, vaskahús og geymsla.  Stærð á endaíbúðum er 121,3 fm og á miðjuíbúðum 118,7 fm
Íbúðirnar eru parketlagðar með harðparketi.  Baðherbergi eru með flísum á gólfi og veggjum.  Baðherbergi  eru með innréttingum, vegghengdum salernum og ”walk in” sturtum. 
Eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar og fataskápar eru frá Ikea. Eldhústæki eru frá Ikea, þ.e. ofn og helluborð (span).  Í eldhúsum eru blöndunartæki og eldhúsvaskar frá Ikea.  Eldhúsinnréttingar er hvítar með dökkum plötum. 
Allir veggir eru hvítt málaðir.  Anddyri, baðherbergi og vaskahús eru flísalögð en önnur rými eru með parketi.  Fataskápar eru komnir í herbergi.
Til áréttingar:
Hreinsa þarf reglulega úr  niðurföllum í sturtum. Gólfrist er tekinn upp og niðurfallshólf tekið upp og hreinsað.  Í nýjum iíbúðum er byggingarraki.  Því er nauðsynlegt að loftræsta meira en ella fyrsta árið eftir að flutt er í nýja íbúð.  Nýjustu þéttilistar á gluggum og hurðum geta gert íbúðina mjög þétta.  Myndist þéttiraki innan á gler (vegna kulda ofl.) er mjög mikilvægt að lofta út og þurrka það vatn sem sest í glugganum, svo að það valdi ekki skemmdum á honum.  Smyrja verður útihurða-, glugga- og svalahurðaskraá a.m.k. einu sinni á ári með þunnri olíu.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is
 

Kjarralda 1B

850 Hella
TegundRað-/parhúsStærð118,7 m²Herbergi4Svefnherb.3
73.600.000 kr.620 þ./m²
FasteignanúmerF2544348Fasteignamat6.010.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÞrúðvangi 18, 850 HellaSími487-5028

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 5 myndir

Upp ↑