fasteignasölur.is
Goðakór 3
Opið hús 4. nóv. kl. 17:30–18:00
1 af 45

Um eignina

Fallegt og vel skipulagt einbýlishús með bílskúr á frábærum stað við Goðakór 3 í Kópavogi. Aukin lofthæð, lofthæð og innbyggð lýsing. Fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, innangengt í bílskúr og fallegur garður með timburverönd og heitum pott. Hægt er að útbúa séríbúð með sérinngangi á jarðhæð. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls  207,7 fm. og þar af er bílskúr 34,9 fm.


** Fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi.
** Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 165.750.000 kr.
** Eignin býður upp á mikla möguleika, t.d. fjölga svefnherbergjum eða útbúa sér íbúð með sérinngangi.

Nánari lýsing eignar:
Neðri hæð

Forstofa rúmgóð með fatahengi og flísum á gólfi.
Tvö svefnherbergi eru á hæðinni með fataskápum og flísum á gólfi. 
Baðherbergi með sturtuklefa, snyrtileg innrétting, upphengt salerni og gluggi. Flísalagðir veggir og gólf. 
Sjónvarpsherbergi rúmgott með flísum á gólfi. Úr rýminu er innangengt inn í  bílskúr.
Bílskúr hefur verið stúkaður niður með léttum vegg og er hluti hans í dag nýttur sem þvottahús. Bílskúrshurð og einnig inngangur á hurð á hlið bílskúrsins. Opnanlegir gluggar. Flísar á gólfi. 

Efri hæð
Steyptur stigi
liggur upp á efri hæð hússins með glerhandriði og flísum.
Eldhús með innréttingu frá Innex, granít borðplötur, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, gufugleypir, helluborð og flísar á gólfi. Rúmgott og bjart rými sem tengist stofu/borðstofu.
Stofa/borðstofa bjart og fallegt rými með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum. Fallegt útsýni er úr stofunni. Nýlegt parket á gólfi. Útgengt er út á 15,2 fm. svalir úr rýminu.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Svefnherbergi með fataskáp og flísum á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtu aðstöðu, góð innrétting, upphengt salerni, gluggi og flísar á veggjum og gólfi. 

Lóðin er fullfrágengin. Rúmgóð hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu. Á baklóð hússins er timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.

Eignin er frábærlega vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi á vinsælum stað í Kópavogi. Í göngufjarlægð eru bæði grunn-og leikskólar, íþróttaaðstaða Kórsins og verslun Krónunnar.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanignu gudbjorg@trausti.is eða Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Goðakór 3

203 Kópavogur
TegundEinbýlishúsStærð207,7 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.2
174.900.000 kr.842 þ./m²
Byggingarár2007InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2279510Fasteignamat160.400.000 kr.Brunabótamat111.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑