fasteignasölur.is
Sörlaskjól 94
Nýtt
1 af 46

Um eignina

BORG fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega fjögurra herbergja hæð með auka íbúð við Sörlaskjól 94, 107 Reykjavík.

Um er að ræða einstaklega smekklega og vel skipulagða hæð með sérinngangi á eftirsóttum stað við sjávarsíðuna. Miðhæð í þriggja íbúða húsi sem byggt var árið 1951. Með eigninni fylgir bílskúr og tvö bílastæði. Heildarstærð eignarinnar er 134,3 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands, þar af er hæðin 109,2 m² og bílskúrinn 25,1 m².

Innra skipulag og frágangur
Hæðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Ekkert hefur verið til sparað í efnisvali og frágangi sem skapar glæsilega heild.
Gengið er inn í hol og þaðan inn á gang sem tengir saman herbergi og alrými. Á gangi eru marmaraflísar sem gefa rýminu glæsilegt yfirbragð.
Eldhúsið er búið vandaðri sérsmíðaðri innréttingu frá Bulthaup, keyptri hjá Eirvík. Innréttingin gefur rýminu sérlega fágað og nútímalegt yfirbragð. Fallegt fiskibeinaparket setur svip sinn á stofu og eldhús. Eldhústæki eru frá framleiðandanum SMEG.
Stofan er björt með fiskibeinaparketi á gólfi og skrautlistum í lofti. Úr henni er útgengt á suðursvalir með óhindruðu sjávarútsýni til suðausturs, allt suður á Álftanes og til Reykjaness.
Baðherbergið er smekklegt, flísalagt í hólf og gólf og búið bæði frístandandi baðkari og sturtu, Vola blöndunartæki. Upphengt salerni.
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergið er bjart og vel búið skápum. Barnaherbergin tvö eru einnig björt og rúmgóð. Herbergin eru með vönduðum teppum á gólfum og skrautlistum í loftum.

Bílskúr
Með eigninni fylgir 25,1 m² bílskúr sem hefur verið breytt í litla íbúð. Árið 2025 voru gerðar breytingar á skúrnum. Sett var upp frístandandi eldhúseining ásamt baðherbergi, sem var stúkað af sem hefur á að skipa salerni, vask og sturtuklefa. Fyrir framan bílskúrinn er bílastæði fyrir tvo bíla. Hleðslustöð fyrir rafbíla við stæði.

Ytra byrði
Húsið lítur mjög vel út að utan og hefur nýlega verið steinað.
Einnig fylgir eigninni geymsla, auk aðgangs að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Bak við húsið er skjólgóður gróinn garður.

Hér er um að ræða glæsilega og vel útfærða eign þar sem vandað efnisval, fallegur frágangur og gott herbergjaskipulag fara saman. Bílskúrinn, sem hefur verið innréttaður sem lítil íbúð, og bílastæðin fyrir framan hann eru sérstakir kostir eignarinnar og auka notagildi hennar.

Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Sörlaskjól 94

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundHæðStærð134,3 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
144.900.000 kr.1.079 þ./m²
Byggingarár1951InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2026576Fasteignamat113.900.000 kr.Brunabótamat80.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑