1 af 31
Um eignina
Eyrargata 31, Eyrarbakki – Hvoll
Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, kynnir:
Einstakt og sögufrægt einbýlishús á þremur hæðum, kjallara, aðalhæð og risi, á stórri sjávarlóð við Eyrargötu 31 á Eyrarbakka. Húsið ber nafnið Hvoll og stendur á sjávarlóð sem nær að sjóvarnargarði og er leigð til erfðafestu.
Hvoll er eitt af fyrstu steinsteyptu húsunum á svæðinu og er húsið klætt að utan með standandi timburklæðningu. Húsið á sér áhugaverða sögu og hefur á árum áður meðal annars verið sýslumannsbústaður og prestsbústaður.
Eignin hefur sterkt yfirbragð þar sem reynt hefur verið að halda í sem mest upprunalegt þó með nútímaþægindum líka. Húsið er rúmgott og velskipulagt og einkennist af upprunalegum gólfum, burðarbitum í lofti - aukinni lofthæð og fallegum tengslum við sögu hússins. Frá efri hæð er sjávarútsýni til suðurs og fjallasýn til norðurs.
Lóð og útisvæði:
Lóðin er 2.290 fm erfðafestulóð sem samkvæmt skilgreiningu þess orðs er eilíf og óuppsegjanleg og nær að sjóvarnargarði.
Við húsið er ca 75 fm pallur með skjólveggjum, sem skapar gott og skjólgott útisvæði en hægt er að ganga út á pall úr sólstofu. Tveir hólar eru á lóð annar var lengi nýttur sem kartöfllugeymsla þegar efri garðurinn var nýttur sem kartöflugarður og fyrir aðra ræktun.
Árið 1986 var ráðist í umfangsmiklar breytingar á húsinu. Þá var meðal annars byggður kvistur til austurs, sólstofu bætt við húsið og byggt um 30 fm svefnherbergi á efri hæð þar sem útgengt er út á suðursvalir með sjávarsýn.
pprunaleg gólf eru að stórum hluta varðveitt á fyrstu og annarri hæð. Náttúruflísar eru í forstofu og sólstofu. Gólfhiti er í forstofu og baðherbergi á neðri hæð.
Aðalhæð
Forstofa/hol: Náttúruflísar á gólfi og gólfhiti.
Stofa, borðstofa og eldhús: Bjart og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast vel saman. Eldhúsið var endurnýjað árið 2004 og opnað inn í stofu. Þar er ALNO-innrétting í vanillulit með gegnheilli hnotuborðplötu. Upprunaleg gólf eru að mestu varðveitt. Til er framhlið á fyrir innbyggða uppþvottavél. Eldri bakarofn frá AEG er í eldhúsi en nokkurra ára spanhelluborð er frá Bosch auk þess sem gashelluborð er til í eldunareyjuna. Háfur.
Úr eldhúsi liggur stigi upp á efri hæð. Aðgangur að kjallara frá rýminu í gegnum hlera á gólfi auk þess sem aðgengi er utanfrá.
Baðherbergi: Sturta, upphengt salerni, vaskinnrétting og spegill. Gólfhiti er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Sólstofa: Gengið er niður tvær tröppur frá aðalhæð í sólstofu. Náttúruflísar eru á gólfi. Útgengt út á pall úr sólstofu.
Efri hæð
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, miðrými (sjónvarpsrými/setustofa) og baðherbergi. Tvennar svalir til suðurs og norðurs.
Svefnherbergi I :– hjónaherbergi:
Mjög rúmgott, um 30 fm, og hluti viðbyggingar frá 1986. Sérsmiðaðir fataskápar endilöngu herberginu. Gólffjalir eru frá 1986. Úr herberginu er gengið út á svalir til suðurs með fallegu sjávarútsýni.
Svefnherbergi II:
Rúmgott herbergi norðan megin með fataskápum og upprunalegum gólfum. Útgengt er á svalir til norðurs með götu- og fjallasýn.
Svefnherbergi III:
Barnaherbergi sem snýr til norðurs. Upprunalegar gólffjalir. Lítill skápur undir súð.
Baðherbergi:
Baðkar, vaskinnrétting og salerni. Þakgluggi.
Vegna súðar er raunverulegt gólfflatarmál efri hæðar mun fleiri fermetrar en skráðir en skráðir.
Kjallari:
Kjallari er undir öllu eldra húsi eignarinnar. Lofthæð er um 1,90 m. Ýmsar vangaveltur hafa verið með að dýpkan hann þar sem undirlagið er sandur og breyta aðkomu að honum utanfrá. Í dag er hann upprunalegur.
Eign sem býður upp á mikla möguleika á einstakri lóð. Geymsla er skráð með húsinu en hún hefur ekki verið til staðar sl 50 ár.
Viðhald eignar:
1986: Kvistur til austurs, sólstofa og stórt svefnherbergi við suðurhliðina byggt. Þakgluggar á baðherbergi og í gangi settir.
1986: Ný rafmagnstafla og rafmagnsídráttur á efri hæð.
2004: Eldhús endurnýjað - opnað á milli stofu og elshúss. Pallur byggður og loft upptekin. Aðalhæðin er einangruð innanfrá líka og krossviður á bakvið gips og upparklæðning. Ullarklæðning í loftum.
2004: Rafmagn endurnýjað á aðalhæðinni að hluta.
2004-2008. Gólfhiti í forstofu og baðherbergi á neðri hæð settur
2019. Hús málað að utan að mestu og þak. Nýju járni bætt undir þakplötur sem voru farnar að ryðga og nýjar festingar settar að hluta þar sem þótti vanta.
2019. Ný klæðning á suðurhlið og vatnsbretti úr blikki sett við glugga.
Eyrargata 31
820 Eyrarbakki
TegundEinbýlishúsStærð258,9 m²Herbergi7Svefnherb.3Baðherb.2
Tilboð
Byggingarár1913InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2200073Fasteignamat64.050.000 kr.Brunabótamat88.960.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 31 myndir
Upp ↑





























