fasteignasölur.is
Strandgata 9 íbúð 301
1 af 13

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur s. 466 1600

Strandgata 9 íbúð 301 - Skemmtileg 2ja herbergja íbúð á efstu hæð í fallegu húsi í miðbæ Akureyrar - stærð 41,9 m²

* Nýlegt eldhús
* Nýlegt baðherbergi
* Tvennar svalir

Forstofa
er með flísum á gólfi. Gengið er inn í íbúðina af svölum. 
Eldhús, falleg brún plastlögð innrétting með dökk grárri borðplötu og á milli skápa. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfi og kastarbrautir í lofti. Úr stofu er gengið út á suður svalir.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, upphengdu wc, sturtu og opnanlegum glugga. Tengi er fyrir þvottavél. 
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og einföldum opnu skáp.
Sér geymsla er á stigapallinum, merkt 0304
Á jarðhæðinni er sameiginleg geymsla undir stiga, merkt 0104.

Annað
- Tvennar svalir
- Eignin hefur verið í útleigu, skammtímalegu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Strandgata 9 íbúð 301

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð41,9 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
39.900.000 kr.952 þ./m²
Byggingarár1907InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2239923Fasteignamat25.200.000 kr.Brunabótamat23.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑