fasteignasölur.is
Brúarhvammur
1 af 18

Um eignina

Hannes Steindórsson kynnir: Brúarhvammur – þróunartækifæri við Geysi.
Samþykkt skipulag fyrir 100 herbergja hóteli, 10 smáhýsum og veitingastað.
Staðsett við Tungufljót í hjarta Gullna hringsins,
Samtals 4.500 fm byggingarmagn.


Einstök staðsetning í Gullna hringnum.
Jarðsvæði við Biskupstungnabraut, skammt frá Geysi og Gullfossi.

-Staðsetning við þjóðveg 35.
-Geysir og Gullfoss í næsta nágrenni.
-Góður sýnileiki og einföld aðkoma.
-Tækifæri til áfangastaðar með gistingu og upplifun.

Brúarhvammur býður upp á sjaldgæft tækifæri til uppbyggingar ferðaþjónustu á einu fjölfarnasta ferðamannasvæði landsins.
Jörðin liggur við bakka Tungufljóts og í næsta nágrenni við helstu áfangastaði Gullna hringsins.


Sterkur ferðamannastraumur á svæðinu
Geysir og Gullfoss skapa náttúrulega eftirspurn eftir gistingu í nágrenninu.
Umfang ferðamanna um svæðið er eitt helsta verðmæti staðsetningarinnar.

Á Brúarhvammi stendur um 120 m² íbúðarhús á tveimur hæðum sem var endurbyggt árið 2023. Húsið er með fjögur svefnherbergi og getur nýst til útleigu og ferðaþjónustu á meðan stærri uppbygging er undirbúin.
Á jörðinni stendur einnig um 154 m² braggi sem þarfnast endurbóta. Hann getur orðið hluti af þjónustu eða stoðrými, eftir nánari þarfagreiningu og útfærslu.
Núverandi húsakostur skapar tekjumöguleika strax
Íbúðarhús hefur þegar verið endurbætt og getur nýst samhliða frekari uppbyggingu.


Á sunnanverðri jörðinni er gert ráð fyrir allt að 10 smáhýsum, þar sem hvert hús getur verið allt að 45 m².
Smáhýsin geta orðið sjálfstæðar og vandaðar gisti-einingar með svefn- og setuaðstöðu, baðherbergi, eldhúskrók og einkaverönd.
Fáðu sendan bækling og önnur gögn sendu póst á hannes@fastlind.is
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson hannes@fastlind.is

 



 

Brúarhvammur

806 Selfoss (dreifbýli)
TegundJörð/LóðStærð60274,8 m²Herbergi100
Tilboð
Byggingarár2027InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2220643Fasteignamat31.165.000 kr.Brunabótamat32.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑