fasteignasölur.is
Sléttahraun 25
Opið hús 2. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 33

Um eignina

Hraunhamar fasteginasala kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja 84,4 fm. íbúð á 1. hæð á vinsælum stað í fjölbýli við Sléttahraun 25 Hafnarfirði. Frábær staðsetning, miðsvæðis og örstutt í skóla, verslanir, þjónustu, stofnbrautir ofl. 

Íbúðin sjálf er skráð 77,8 fm. og skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, björt stofa- og borðstofa með útgengt út á s-svalir, baðherbergi og sameiginlegt þvottahús á sömu hæð með þægilegu aðgengi.  Sérgeymsla 6,6 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.  Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta.  Skipt var um teppi í sameign og málað 2023.  





Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með opnum fataskáp.
Eldhús er flísalagt með fallegri hvítri innréttingu, flísar á milli skápa. Helluborð og ofn í vinnuhæð.  Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt. Stór og bjartur opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og opnir fataskápar eru í hjónaherbergi. Harðparket á gólfum
Stofa- og borðstofa er í opnu og björtu rými með útgengt út á suðvestur svalir. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með sturtubaðkari og hvítri vaskinnréttingu. Góður opnanlegur gluggi og flísalagt er í hólf og gólf.
Sameiginlegt þvottaherbergi á hverri hæð og því aðeins 3 íbúðir með hvert þvottaherbergi.
Aðgengi íbúðar að þvottaherbergi á hæð er mjög gott.

Sérgeymsla er staðsett í sameign um 6,6 fm. með glugga og rafmagni og einnig er hjóla- og vagnageymsla staðsett í sameign.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn með leiktækjum.
Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgir íbúðinni réttur til byggingar bílskúrs.

Samkv. uppl. seljenda: 
Ofnar íbúðar voru yfirfarnir og skipt um ofn í barnaherbergi. Skipt hefur verið um rafmagnstengla og rofa að hluta.  Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta.  Skipt var um teppi í sameign og málað 2023.  Þak var yfirfarið 2018 og talið í lagi.  Nýlegar innihurðar síðan 2024. Nýlegt harðparket síðan 2024. Nýlegur forstofuskápur síðan 2024.

Þetta er áhugaverð góð eign miðsvæðis í bænum sem vert er að skoða frekar. !

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
62.900.000 kr.745 þ./m²
+9,4% á 2 árum
7. júní 2024Þinglýstur kaupsamningur
57.500.000 kr.681 þ./m²
+59,7% á 5 árum
26. september 2019Þinglýstur kaupsamningur
36.000.000 kr.427 þ./m²
+103,4% á 12 árum
25. apríl 2007Fyrsta sala
17.700.000 kr.207 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sléttahraun 25

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð84,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
62.900.000 kr.745 þ./m²
Byggingarár1966FasteignanúmerF2078920Fasteignamat58.150.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑