Um eignina
ATH! Seljandi er opinn fyrir skipti á minni eign í Stykkishólmi.
Eignin skiptist þannig:
Forstofa:Góður fataskápur. Ný útidyrahurð. Flísar á gólfum og gólfhiti.
Hol: Tengir saman helstu rými hússins. Parket á gólfum..
Eldhús: Nýlega uppgert með fallegri innréttingu í viðarlit. Veglegur háfur. Hiti í gólfum. Parket.
Borðstofa: Björt og falleg með einstöku og óheftu útsýni. Útgengt á veglega verönd. Parket á gólfi. Hiti í gólfi.
Stofa: Stórt og bjart alrými með stórum gluggum. Parket á gólfum.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi. Öll björt og falleg með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert á vandaðan máta. Walk-in sturta me glerskilrúmi. Falleg viðar innrétting. Handklæðaofn. Flísar á gólfum. Hiti í gólfi.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús/geymsla með fínni hvítri innréttingu og góðu skápaplássi.
Bílskúr: Sjálfvirkur hurðaopnari. Rúmgóður og upphitaður. Rennandi vatn.
Lóð og útisvæði: Stór og skjólsæll sólpallur sunnan við húsið með góðu rými fyrir útihúsgögn og samveru. Suðurstaðan og hið óhefta útsýni setja sterkan svip á eignina og gera útisvæðið sérstaklega aðlaðandi. Heitur pottur og útisturta.
Annað: Eignin hefur hlotið mjög gott almennt viðhald í gegnum tíðina og mætti segja að það hafi verið algjörlega verið tekið i gegn að innan. Ný gólfefni, nýjar innihurðir sem og útihurðir. Baðherbergi og eldhús gerð upp á vandaðan máta. Lóð er frágengin og við húsið er steypt stétt og upphitað bílastæði.
Hér er á ferðinni frábærlega staðsett, vel skipulögð fjölskyldueign á einni hæð með þremur svefnherbergjum og bílskúr. Einstakt útsýni og stór skjólsæll sólpallur sem vísar til suðurs með heitum potti og útisturtu eru meðal helstu kosta eignarinnar. Hér er sjón sannarlega sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Nestún 2
Staðsetning
Allar 49 myndir
Upp ↑















































