fasteignasölur.is
Álalind 14
Opið hús 3. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 49

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Einstaklega falleg og rúmgóð tveggja herbergja íbúð með glæsilegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Álalind 14, 201 Kópavogur, eign merkt 07-04, ásamt sérmerktu stæði í upphitaðri bílageymslu.

Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gíslason Fasteignasali, í síma 848-7099, tölvupóstur jongunnar@fstorg.is.


Íbúðin er mjög snyrtileg, björt og vel skipulögð. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús og rúmgott alrými sem telur stofu og eldhús. Útgengt er úr stofu á 12,7 fm suð-vestur svalir með einstöku útsýni ásamt yfirbyggðri geymslu/svalaskýli tilvalið fyrir t.d. grill og útihúsgögn. Aukin lofthæð er í íbúðinni c.a 2,67m. 

Frábær staðsetning í vinsælu hverfi mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, örstutt í stofnbrautir og alla þjónustu.

Húsið er byggt árið 2017 og er staðsteypt, einangrað að utan með steinull og klætt með fallegri álklæðningu. Húsið fékk verðlaun fyrir útlit og hönnun árið 2020.

Nánari lýsing:

Forstofa er með góðum fataskáp og fatahengi með vinylparketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott og snyrtilegt með fallegri innréttingu, handlaug, speglaskáp, glersturtuklefa, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Góð þvottaaðstaða er á baðherbergi með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegar flísar á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og vinylparketi á gólfi. Fallegt útsýni er úr svefnherbergisglugga.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með glugga á tvo vegu með einstöku útsýni og vinylparketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á suð-vestur svalir.
Eldhús er með fallegri ljósri viðarinnréttingu og hvítum efri skápum, bakaraofni, helluborði og veggháf ásamt innbyggðri uppþvottavél.
Íbúðinni fylgir geymsla í sameign sem er 9,3fm að stærð.
Í sameign er einnig rúmgóð hjóla- og vagnageymsla.
Sérmerkt bílastæði í upphitaðri bílageymslu.
Sameiginleg hleðslustæði fyrir rafmagnsbíla.

Íbúðin er í raun á 8.hæð þar sem jarðhæð er merkt 0.

Vönduð og glæsileg eign með mjög fallegu útsýni m.a. Snæfellsjökull og Esjan. Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Íbúðin getur verið laus mjög fljótlega eftir kaupsamning.


Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gíslason Fasteignasali, í síma 848-7099, tölvupóstur jongunnar@fstorg.is.

Eignin Álalind 14 íb. 704 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-3174, birt stærð 77.4 fm. Þar af geymsla 9,3 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Álalind 14

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð77,4 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
72.900.000 kr.942 þ./m²
Byggingarár2017InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2363174Fasteignamat70.300.000 kr.Brunabótamat55.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑