Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 89,9 fm. og þar af er geymsla 6,2 fm. Sérafnotareitur er ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar.
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa opið og bjart rými með stórum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á sérafnotareit íbúðarinnar.
Eldhús með fallegri innréttingu, innfelld uppþvottavél, spanhelluborð, gufugleypir, ofn og parket á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með vinnuborði með vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Herbergi rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn, upphengt salerni og flísar á gólfi og veggjum að hluta. Gólfhiti.
Geymsla er á hæð íbúðar og því mjög gott aðgengi.
Sérafnotareitur skráður 10,5 fm.
Bílastæði íbúðar er sérmerkt á bílaplani.
Hjóla- og vagnageymsla snyrtileg og rúmgóð með hilluplássi fyrir hverja eign.
Lóðin er fullfrágengin og sameiginlegur garður.
Húsið: Húsið er 5 hæða fjölbýlishús með 13 íbúðum, einum stigagangi og einni lyftu. Heildarfjöldi bílastæða er 25. 15 bílastæði eru á lóð og 10 stæði í lokuðu bílastæðahúsi. Hönnun hússins er samkvæmt kröfum til algildrar hönnunar og því auðvelt að aðlaga það að þörfum hreyfihamlaðra til búsetu. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru ál/tré og því húsið viðhaldslítið.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Urriðaholtsstræti 30
Staðsetning
Allar 26 myndir
Upp ↑
























