fasteignasölur.is
Skólastígur 26
1 af 32

Um eignina

Valhöll og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna stórglæsilega fjögurra herbergja hæð með sérinngangi á 2. hæð, ásamt bílskúr í tvíbýlishúsi við Skólastíg 26 í Stykkishólmi.  Um er að ræða afar fallega eign sem var endurnýjuð að miklu leyti árið 2024 af kostgæfni með fallegan heildarsvip að leiðarljósi í anda tímabils hússins.  Skv. þinglýstum eignarskiptasamning eru heildarfermetrar 157,7 fm. Þar af er íbúðin skráð 128,4 fm og bílskúrinn 29,3 fm. 

Komið er inn í notalega forstofu með fallegum flísum á gólfi og sjarmerandi veggfóðri á veggjum, afar falleg hurð skilur forstofuna að frá aðalrými íbúðarinnar. Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman öll rými efri hæðar.  Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með gluggum á þrjá vegu, þar af er einn franskur gluggi, einstakur bogadreginn veggur með fallegu veggfóðri, loftalistar upp við loft og rósettur í lofti, úr borðstofu er útgengt út á svalir með glæsilegu útsýni yfir Breiðafjörðinn. Eldhúsið hefur verið endurnýjað á skemmtilegan máta þar sem hluti innréttingar eru fallegir eldri tekk skápar og skúffur í bland við nýja innréttingu. innbyggð Miele uppþvottavél, span helluborð, Miele bakaraofn. Borðplata er heil Terrazzo risaflís frá Mood interiors, á gólfi eru ítalskar Terrazzo flísar.  
Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, útgengt er á svalir úr öðru þeirra. Baðherbergið er endurnýjað á fallegan hátt , ítalskar Terrazzo gólflísar, uppgerður vintage vaskur á fótum, sérpöntuð vintage blöndunartæki , baðkar með sturtuaðstöðu, einstök sporöskjulaga stöng fyrir sturtuhengi, handklæðaofn, upphengt salerni. Vinyl parket er á gólfi efri hæðar í alrými og herbergjum.
Á neðri hæð er rými með sérinngangi sem í dag er nýtt sem svefnherbergi. Innangengt er úr herberginu í rúmgott þvottahús og inn af því er lítil geymsla undir stiga. Mjög rúmgóður frístandandi bílskúr með inngönguhurð og gluggum. 

Stykkishólmur er einn af fallegustu bæjum landsins, þekktur fyrir mikla náttúrufegurð og fallega uppgerð hús. Eignin er staðsett í stuttu göngufæri frá miðbænum og höfninni þar sem finna má fjölbreytta veitingastaði, söfn, verslanir o.fl. Í bænum er skemmtilegur golfvöllur. 

EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA - Áhugasömum er bent á að bóka einkaskoðun á ingunn@valhöll.is


Helstu endurbætur 2024 að sögn seljenda:
Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt tækjum og gólfefnum.
  • Baðherbergi endurnýjað, öll tæki ásamt gólfefnum. 
  • Öll gólfefni endurnýjuð.
  • Opnað var úr holi inn í stofu / borðstofu og settur burðarbiti. 
  • Gluggar endurnýjaðir á efri hæð í svefnherbergjum, borðstofu og eldhúsi ásamt svalahurðum. Nýjar stein gluggakistur þar sem gluggar eru nýjir. Gluggakistur fylgja með fyrir glugga í stofu sem ekki hafa verið endurnýjaðir. 
  • Svalir klæddar að innan með Viroc plötum.  
  • Gluggar endurnýjaðir á jarðhæð í þvottahúsi, annar gluggi af tveimur í herbergi og útidyrahurð.
  • Þvottahús lagfært, gólf lakkað og settur vaskur í borð, tengingar fyrir þvottavél og þurrkara.
  • Skólplagnir á efri hæð endurnýjaðar, neysluvatnslagnir endurnýjaðar í íbúð frá inntaki.
  • Búið að gera ráð fyrir vatnslögnum frá húsi í bílskúrinn og kapli fyrir rafhleðslustöð. 
  • Nýtt ruslatunnuskýli og möl í innkeyrslu.
  • Ný rafmagnstafla og dregið nýtt rafmagn í alla íbúðina. Ljósleiðari kominn inn í hús en hefur ekki verið tengdur. 
  • Nýjar utanáliggjandi ofnalagnir, nýjir ofnar á baði, eldhúsi og stofu.

Ath! Eignin er ekki skv upprunalegri teikningu. Ekki er starfrækt húsfélag í húsinu. 

Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Skólastígur 26

340 Stykkishólmur
TegundFjölbýlishúsStærð158,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
64.900.000 kr.410 þ./m²
Byggingarár1956InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2116196Fasteignamat45.500.000 kr.Brunabótamat68.870.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑