fasteignasölur.is
Frostafold 59
Opið hús 3. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Björt og rúmgóð 2herb íbúð á 2.hæð með sérinngangi af svölum og sérmerktu bílastæði fyrir framan hús. Húsið var viðgert málað að utan og rennur endurnýjaðar fyrir ca 4 árum og þá var sólskáli í íbúð einnig endurnýjaður og einnig skipt um glugga og gler í eldhúsi. Eignin er skráð skv fmr 81.8 fm. Eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun og alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn um sérinngang af svölum (gengið upp eina hæð) inn í forstofu með flísum á gólfi og hurð sem aðskilur forstofu frá aðalrými.
Hol: Frá forstofu er komið inná rúmgott hol með miklum og góðum fataskápum sem ná uppí loft, harðparket er á gólfi.
Eldhús: eldhúsið er bjart með rúmgóðum borðkrók við glugga. Dökk eldhúsinnrétting með ágætis skápaplássi og grárri borðplötu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa, ofninn er í vinuhæð og vifta er yfir keramikhelluborði. Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt með. Harðparket er á gólfi.
Stofa: Frá eldhúsi er opið inn í rúmgóða stofu og borðstofu. Harðparket er á gólfi og útgengt á suður svalir. Í enda stofu er nýlega endurnýjaður sólskáli.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og miklum fataskápum sem ná uppí loft og eru á heilum vegg .
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga. Baðkar með sturtuaðstöðu, flísar eru á gólfi og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara sem geta fylgt með.
Geymsla: í sameign er sér geymsla sem fylgir eigninni og sameiginleg hjóla og vagna geymsla.
Niðurlag: Þetta er björt og góð íbúð á eftirsóttum stað í Foldahverfi Grafarvogs þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
 

Frostafold 59

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð81,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
62.900.000 kr.769 þ./m²
Byggingarár1986InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2041660Fasteignamat62.000.000 kr.Brunabótamat43.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑