Um eignina
Björt og vel skipulögð 81,5 fm, 3ja herbergja búð með útsýni á 4. hæð við Meistaravelli 33 í Vesturbæ Reykjavíkur.
Eignin státar af miklu útsýni til sjávar, yfir Álftanes, Reykjanesið og KR-völlinn. Frá stofu er gengið út á suðvestursvalir þar sem njóta má útsýnisins. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgott stofu- og borðstofurými. Skipulagið er gott, með svefnherbergjum og baðherbergi á sér gangi.
Eignin Meistaravellir 33 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-5800, birt stærð 81,5 fm, þar af er 4,2 fm sérgeymsla.
Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is.
Eignin skiptist í:
Forstofu, rúmgóða stofu með útgengi á suðvestursvalir, eldhús með borðkrók og tengi fyrir þvottavél, tvö svefnherbergi og baðherbergi, 4,2 fm sérgeymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla í kjallara hússins.
Helstu kostir eignar:
- Glæsilegt og víðáttumikið útsýni til sjávar, yfir Álftanes, Reykjanesið og KR-völlinn.
- Suðvestursvalir og björt stofa með stórum gluggum.
- Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með tveimur svefnherbergjum og afmarkaðri vinnuaðstöðu sem auðvelt er að breyta.
- Eftirsótt staðsetning í grónu hverfi í Vesturbæ Reykjavíkur, þar sem stutt er í þjónustu, íþróttaaðstöðu og útivist.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi á suðvestursvalir. Í hluta stofunnar hefur verið komið fyrir skilrúmi sem afmarkar vinnuaðstöðu sem nú er nýtt sem heimaskrifstofa.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, viðarlituðum borðplötum og góðu skápa- og vinnuplássi. Efri skápar eru að hluta með glerhurðum og gráar flísar eru á milli skápa. Helluborð með gashellum. Flísar á gólfi. Við glugga er notalegur borðkrókur með fallegu útsýni. Tengi fyrir þvottavél er í eldhúsinu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Innbyggðir, hvítir fataskápar með rennihurðum sem ná upp undir loft.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er með ljósum flísum á veggjum og mósaíkflísum á gólfi. Baðkar með sturtu og glerskilrúmi.
Geymsla: Í kjallara hússins er 4.2 fm sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Stigagangur: Snyrtilegur með teppi á gólfum. Tvær íbúðir eru á hverjum stigapalli. Ekki er lyfta í húsinu.
Sameign: Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla með útgengi. Þar er einnig geymslugangur með sérgeymslum íbúða.
Lóð og aðkoma: Snyrtileg aðkoma að húsinu og næg bílastæði við húsið.
Viðhald:
Þak tekið í gegn árið 2013.
Gert við gluggapósta og skipt um öll gler árið 2018.
Múrviðgerðir á veggjum og svalargólfum við Meistaravelli 31-35 árið 2019.
Staðsetning:
Meistaravellir 33 er staðsett í grónu og eftirsóttu íbúðahverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Hverfið er vinsælt fyrir nálægð við fjölbreytta þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og útivistarsvæði. Í næsta nágrenni er íþróttasvæði KR, Vesturbæjarlaug og fjölbreytt þjónusta í Vesturbænum. Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram Ægissíðu og strandlengjunni.
Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Meistaravellir 33
Staðsetning
Allar 29 myndir
Upp ↑



























