fasteignasölur.is
Jöfursbás 3B
Opið hús 1. nóv. kl. 13:00–14:00
1 af 26

Um eignina

Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir:  Nýja byggð við Jöfursbás í Gufunesi, 112 Reykjavík.  
Vandaðar innréttingar og steinn á borðum. Glæsilegt útsýni, stórar stofur, gólfsíðir gluggar ásamt gólfhita og aukinni lofthæð.


Nánar um eign, íbúð 105, Jöfursbás 3B:
Eignin er 3. herbergja íbúð á 1. hæð, merkt 0105, birt stærð 83,2 fm. 
Einnig tilheyrir eigninni stæði í bílageymslu, merkt B023, geymsla í sameign, merkt 0028, birt stærð 7,0. 
Birt heildarstærð séreignar er 90,2 fm.

Skoðið eignina hér í gegnum 3D slóð

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is / sýni alla daga 

Sjá má skilalýsingu, verðlista og nánari upplýsingar inn á heimasíðu verkefnisins: Ýtið hér


Afhendingartími: Tilbúnar til afhendingar

// Innréttingar eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III
// Blöndunartæki frá Grohe
// Hreinlætistæki frá Duravit
// Quartz steinn frá Technistone á eldhúsum og böðum
// Flísar frá Ebson og harðparket frá Harðviðarval
// Eldhústæki eru AEG


Íbúðir afhentar fullbúnar með gólfefnum - Gólfhiti og gólfsíðir gluggar - Innbyggðir ísskápar og innbyggðar uppþvottavélar

„Áhersla á birtu, útsýni og græn sameiginleg svæði“


Vel hannaðar og fallegar íbúðir með stórbrotnu útsýni
"Við höfum kappkostað að íbúðirnar séu sem best skipulagðar, þannig að hver fermetri nýtist vel og að hið stórbrotna útsýni, bæði sjávar- og fjalla, fái að njóta sín til hins ýtrasta.
Einnig hefur verið lögð áhersla á að gera opnu svæðin á milli húsanna björt og aðlaðandi, ásamt því að inngangar húsa liggi að opnum svæðum og gönguleiðum."

Stutt í alla þjónustu - og náttúruperlur
Allir innviðir eru til staðar enda er hverfið að rísa í gamalgrónu hverfi, Grafarvogi, sem er næststærsta íbúabyggð Reykjavíkur með 17 þúsund íbúa. Þar er verslun og margvísleg þjónusta, fjölmargir skólar og leikskólar og íþróttamannvirki.
Gufunesið býður upp á óþrjótandi útivistarmöguleika í mikilli náttúruparadís og er að byggjast upp sem suðupottur skapandi greina.

Gufunesið - Heilsa, náttúra og vellíðan
Í Gufunesi er að byggjast upp gróskumikið heilsusamlegt samfélag í kringum einstakar strendur sem umlykja hverfið.  Þar er hægt að slaka á í fargufu, skoða fuglalífið á kajak eða þeysast um sundin blá á sæþotu.

Fjölbreyttar samgöngur
Göngu og hjólreiðakerfi höfuðborgarinnar tengist inn í Gufunes eftir strandlengjunni, auk þess sem göngubrú út í Viðey er í bígerð.  Þá er sundabraut á samgönguáætlun og mun sú tengist miðjusetja Gufunesið í Reykjavíkurborg.

Útsýni til sjávar og fjalla
Leiðarljós við hönnun Jöfursbáss 3 var að nýta einstaka eiginleika svæðisins til fulls – sterka tengingu við náttúruna, nálægð við sjóinn og víðfeðmt útsýni til sjávar og fjalla. Markmiðið var að skapa byggð sem nýtir gæði svæðisins á markvissan hátt og styrkir tengsl við umhverfið á öllum stigum.

Hönnuðir: Nordic Office of Architecure
Byggingaraðili: GG verk
Landslagshönnuðir: Landhönnun

Bílastæði
220 stæði við Jöfursbás í borgarlandi
125 stæði á tveimur bílaplönum
130 stæði í bílakjallara við Jöfursbás 3

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Jöfursbás 3B

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð90,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
84.900.000 kr.941 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2541012Fasteignamat77.450.000 kr.Brunabótamat67.380.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑