fasteignasölur.is
Axlarás 24
1 af 41

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt fimm herbergja endaraðhús á einni hæð með bílskúr í nýja Áslandi 4 að Axlarás 24 í Hafnarfirði. Frábær staðsetning, fjölskylduvænt svæði þar sem er stutt í fjölbreytta útivist og í nálægð við fallega náttúru. Um er að ræða eitt af fimm raðhúsum við Axlarás 24-30. Eignin afhendist við kaupsamning, fullbúin með lokaúttekt og er laust til afhendingar. 

Eignin er skráð 152,40 fm skv. HMS, en þar af er 30 fm bílskúr.


Aðkoma og bílastæði eru hellulögð með snjóbræðslu og timburpallur fylgir hverri eign. 

Nánari lýsing eignar:
Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp. 
Hol
Rúmgott bjart alrými 
Glæsilegt eldhús með góðu skápaplássi og vönduðum innréttingum. Bakaraofn í vinnuhæð. 
Eldhúsið er opið inn í rúmgóða bjarta stofuna og borðstofuna. Frá stofu er útgengt út á pall.
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Útgengt er frá hjónaherbergi á pall. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskápur.  
Þrjú svefnherbergi með fataskápum.
Mjög fallegt flísalagt baðherbergi með góðri sturtuaðstöðu, handlaug, vandaðri innrétting og handklæðaofn.
Þvottaherbergi með innréttingu fyrir þvottatæki ásamt annarri innréttingu með vask. Þaðan er innangengt í rúmgóðan fullbúinn bílskúrinn með epoxygólfi og hleðslustöð.

Frábær staðsetning í fallegu umhverfi í nýja Áslandi 4 í Hafnarfirði. 

Hægt er að nálgast skilalýsingu og fá nánari upplýsingar hjá Hraunhamri fasteignasölu. 

Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars: 
​​​​​Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár – Hraunhamar.is 
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.


 

Axlarás 24

221 Hafnarfjörður
TegundRað-/parhúsStærð152,4 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
146.900.000 kr.964 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2523311Fasteignamat107.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑