fasteignasölur.is
Víðihvammur 1
Opið hús 5. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 39

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Afar fallega, bjarta og snotra 57,9 fm 2ja herbergja risíbúð góðu 3 býli á þessum eftirsótta og rólega stað við Víðihvamminn í Kópavogi. 
Íbúðin er með kvistum og suður svölum. Húsið er sérlega fallegt og reisulegt með glæsilegum garði. Stutt er í miðbæ Kópavogs. Flott útsýni og veðursæld.

Eignin skiptist m.a. þannig: Sameignilegur inngangur með miðhæð, hol/gangur, snyrtilegt bjart eldhús með ljósum innréttingum, gott svefnherbergi með skáp, og útgengi á suður svalirnar. 
Rúmgóð björt stofa og borðstofa, (möguleiki væri að gera herbergi úr borðstofu) frekar lítið baðherbergi, sturtuaðstaða, gluggi. Íbúðin er aðeins undir súð og er því gólfflötur aðeins stærri en samkv. þjóðskrá. 
Lítil geymsla/skápur við stigapall.

Parket á gólfum. 

Í sameign (utangengt) er lítil sérgeymsla auk sameignleg þvottaaðstaða. 
Húsið er nýlega málað að utan og lítur vel út, sama má segja um járn á þaki. 

Þetta er mjög áhugaverð eign  til að skoða frekar á þessum vinsæla stað ! 

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Víðihvammur 1

200 Kópavogur
TegundHæðStærð58 m²Herbergi3Svefnherb.1
59.900.000 kr.1.033 þ./m²
Byggingarár1955InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2065963Fasteignamat52.050.000 kr.Brunabótamat29.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑