fasteignasölur.is
Norðurgata 58
1 af 15

Um eignina

Við opnum snemma og lokum aldrei!!!

Frábær útleigueining
156,5fm vel skipulögð efri hæð með sérinngangi í snyrtilegu tvíbýli við Norðurgötu á Eyrinni, örstutt í skóla og alls konar verslanir og þjónustustarfsemi.

Eign skiptist í:
Jarðhæð:  Forstofa, forstofuherbergi og stigauppgangur, hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi og sérgeymsla.  
Efri hæð: Hol, fimm svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur, eldhús og baðherbergi.
Nánari lýsing:  Komið er inn í forstofu með teppi á gólfi.  Forstofuherbergi er með dúk á gólfi og fataskáp.  Stigahús með steyptum, teppalögðum stiga upp á efri hæð.  Fjögur svefnherbergi eru á efri hæð, öll með parketi á gólfum.  Stofur eru tvær, samliggjandi með parketi á gólfum, önnur stofa var áður nýtt sem svefnherbergi og þar er fataskápur.  Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum.  Eikarinnrétting og skápar, frístandandi sturtuklefi.  Eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu, dökkri borðplötu, flísum á milli efri og neðri skápa og dúk á gólfi, 
Gengið er niður steyptan stiga úr eldhúsi niður í sameign.  Þar er sameiginlegt þvottahús með lökkuðu gólfi og sérgeymsla.  Gengið út á baklóð úr þvottahúsi.  Góð nýting á eigninni, sérlega heppilegt skipulag fyrir stærri fjölskyldur.  Eignin hefur verið í útleigu, stök herbergi og hentar afar vel til þess, 5 svefnherbergi sem hægt er að leigja. 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Norðurgata 58

600 Akureyri
TegundHæðStærð156,5 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.1
69.000.000 kr.441 þ./m²

▼ Lækkað 30. október 2026 um 0,9 m.kr. · var 69.900.000 kr.

Byggingarár1949InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2149563Fasteignamat64.300.000 kr.Brunabótamat67.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagata 1, 600Sími460-5151

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑