fasteignasölur.is
Listabraut 5
Opið hús 4. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 38

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega  4. herbergja íbúð á 3.hæð að Listabraut 5 ásamt bílskúr.. Íbúðin er björt og rúmgóð, svalalokun á suðursvölum. Bílskúr tilheyrir íbúðinni í bílskúralengju norðan húss. Heilarfermetrar eignarinnar eru 120,2 m2 að meðtöldum 20,4 m2 bílskúrs.

Frábær staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslanir. Stór lóð er við húsið. Húsinu hefur verið vel við haldið undanfarin ár.

Þegar komið er inn í íbúðina er eldhús til hægri og stofa/borðstofa þar fyrir innan og eru gluggar til suðurs auk yfirbyggðra svala til suðurs. Salerni til vinstri  ásamt 3 herbergjum. 

Nánari lýsing eignar
Forstofuhol
með parketi á gólfi og fatahengi og efri skáp.
Eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum með fallegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél innréttingu, innbyggður ísskápur með frysti, ofn í vinnuhæð, span helluborð með viftu yfir, svartur vaskur með gylltum blöndunartækjum, parket á gólfi og rúmgóðum borðkrók.
Stofa/borðstofa er rúmgóð  með parketi á gólfi, útgengt á svalir til suðurs, svalalokun er á svölunum.
Baðherbergi er upprunalegt fyrir utan innrétttingu, flísalagt gólf og veggir að hluta, baðkar með sturtuaðstöðu, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og fataherbergi inn af með fínum hirslum.
Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfi .

Í sameign er sérgeymsla sem er rúmlega 4fm að stærð, hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús.

Bílskúr er í bílskúralengju á norðurkanti lóðar, rafmagnshurðaopnun, rafmagn, bílskúrinn er skráður 20,4 m2.


Viðhald á íbúð 
* 2021/2022  eldhúsið endurnýjað 
* 2021/2022 parketið endurnýjað á meiri hluta íbúðar
* 2025 bílskúrhurð endurnýjuð
* 2025 útiljós við bílskúr endurnýjuð ásamt þvi að búið er að gera rafmagnið klárt fyrir hleðslustöð


Viðhald á sameign
* 2026 voru útidyrahurðir pússaðar og lakkaðar.
* 2024 voru dyrasímar endurnýjaðir.
* 2017 var farið í ytra byrði hússins, skipt var um pappa og járn á þaki og húsið múrviðgert á þremur hliðum, filtað og málað, fjórða hliðin er klædd. Einnig var skipt um glugga á suður og austur hliðum, kjallaragluggum á norðurhlið og opnanleg fög endurnýjuið og skipt um gler í gluggum í sameign og skipt um gler í þeim gluggum á vesturhlið sem þess þörfnuðust. Þá var einnig sett svalalokun.  
* 2016 gólfteppi í sameign endurnýjuð.
* 2014 voru lagnir utanhúss, bílaplani og stétt endurnýjaðar. Skólp- og frárennslislagnir einnig út í brunna. Drenlagnir og regnvatnslagnir í bilaplani og gangstéttum jafnframt endurnýjaðar, skipt um jarðveg á bílaplani og það malbilkað. Einnig var þá endurnýjuð gangstétt við húsið og hún hellulögð, ný lýsing sett upp og snjóbræðsla.
* 2012 voru raflagnir í sameign endurnýjaðar.


Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Listabraut 5

103 Reykjavík · Kringlan/Hvassaleiti
TegundFjölbýlishúsStærð120,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
84.900.000 kr.706 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2032009Fasteignamat82.550.000 kr.Brunabótamat55.790.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑