fasteignasölur.is
Sambyggð 20
1 af 34

Um eignina

Rúmgóð og björt 4ra herbergja fullbúin endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð og með sérafnotareit og lyftu í nýbyggingu við Sambyggð 20 í Þorlákshöfn. Geymsla er innan íbúðar. Vandaðar innréttingar og skápar frá Selós ehf.  Innbyggður ísskápur með frystiskáp og innbyggð uppþvottavél fylgir eigninni. Næg bílastæði eru við húsið. Húsið er álklætt með ál/timbur gluggum og er því viðhalds lítið.  Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 105,9 fm. og eru allir skráðir fermetrar innan eignarinnar. 

Nánar um íbúð 105:
Forstofa með góðu skápapássi og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa björt og rúmgott opið rými með stórum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er út á sérafnotareit úr stofunni. 
Eldhús er opið við stofu/borðstofu með vandaðri hnotu innréttingu, innbyggður ísskápur með frystiskáp, innbyggð uppþvottavél, ofn, span helluborð, gufugleypir og gott borðpláss. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi með innangengri sturtu, innréttingu, upphengdu salerni og innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.  Flísar á tveimur veggjum og flísar á gólfi. 
Geymsla er innan íbúðar með parketi á gólfi. 

Nýbyggingin Sambyggð 20 er með 15 íbúðum í þriggja hæða lyftuhúsi með 5 íbúðum á hverri hæð.  Íbúðirnar eru tilbúnar með gólefnum og afhendast við kaupsamning.  
Gott aðgengi er að húsinu, malbikað bílastæði með 26 bílastæðum þar af 2 bílastæði fyrir hreyfihamlaða og tvær rafhleðslustöðvar á bílaplani. 
Húsinu fylgir stór lokuð hjóla- og vagnageymsla. 

Fyrir framan húsið eru hellulagðar stéttar með snjóbræðslukerfi.  

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Sambyggð 20

815 Þorlákshöfn
TegundFjölbýlishúsStærð105,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
70.900.000 kr.669 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSérinngangurLyftaJáFasteignanúmerF2535511Fasteignamat43.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑