Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 74,4 fm. og eru allir skráðir fermetrar innan eignarinnar.
Nánar um íbúð 103:
Forstofa með góðu skápapássi og parket á gólfi.
Stofa björt og rúmgott opið rými með stórum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er út á sérafnotareit úr stofunni.
Eldhús er opið við stofu með vandaðri hnotu innréttingu, innbyggður ísskápur með frystiskáp, innbyggð uppþvottavél, ofn, span helluborð, gufugleypir og gott borðpláss. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofn og innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á tveimur veggjum og flísar á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar með parketi á gólfi.
Nýbyggingin Sambyggð 20 er með 15 íbúðum í þriggja hæða lyftuhúsi með 5 íbúðum á hverri hæð. Íbúðirnar eru tilbúnar með gólefnum og afhendast við kaupsamning.
Gott aðgengi er að húsinu, malbikað bílastæði með 26 bílastæðum þar af 2 bílastæði fyrir hreyfihamlaða og tvær rafhleðslustöðvar á bílaplani.
Húsinu fylgir stór lokuð hjóla- og vagnageymsla.
Fyrir framan húsið eru hellulagðar stéttar með snjóbræðslukerfi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Sambyggð 20
Staðsetning
Allar 18 myndir
Upp ↑
















