fasteignasölur.is
Framnesvegur 54
Opið hús 4. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 24

Um eignina

Nýtt í sölu! Framnesvegur 54 Reykjavík

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna afar fallega og sjarmerandi þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í steyptu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi (þríbýli) við Framnesveg 54 í Reykjavík. Íbúðin er alls 60,9 fermetrar að stærð og er eina íbúðin á hæðinni. Íbúðin var öll endurnýjuð á árunum 2015 - 2019 (utan gólfefna og baðherbergis). Fallegur bakgarður þar sem sérgeymslur og sameiginlegt þvottarými er staðar. Góður tyrfður bakgarður með nýlegu grindverki á lóðarmörkum. 

Húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Samkvæmt upplýsingum var húsið m.a. múrviðgert árið 2015 og 2018 og þakrennur endurnýjaðar. Drenlagnir voru endurnýjaðar árið 2016/2017 ásamt því að tröppur voru endurgerðar. Þá var bakhús (þvottaherbergi/geymslur) endurbyggt árið 2016. Hellulagt var við húsið og bakhús árið 2018 ásamt því að þvottaherbergi og geymsla var tekið í gegn. Árið 2022 var strompur fjarlægður og þakið endurnýjað. Flasning komið fyrir á bakhúsi til þess að koma í veg fyrir leka og skipt um öryggi í rafmagnstöflu og nýir rafmagnstenglar settir upp í þvottaherbergi.

Frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla verslun og þjónustu (t.d. Hagkaup Seltjarnarnes og verslanir út á Granda). Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Íþróttasvæði KR og Vesturbæjarsundlaug í næsta nágrenni. Stutt í alla verslun og menningu sem miðbærinn og nágrenni hafa upp á að bjóða.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa: Með upprunalegum viðarfjölum á gólfi og glugga til suðurs.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2019 á fallegan máta. Upprunalegar viðarfjalir á gólfi, Gorenje eldavél, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa, gluggi til norðurs og borðkrókur.
Svefnherbergi I: Með upprunalegum viðarfjölum á gólfi, gluggum til suðurs og vesturs og góðum skápum.
Svefnherbergi II: Með upprunalegum viðarfjölum á gólfi og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á veggjum og epoxy málningu á gólfi. Sturta, salerni vaskur og speglaskáp fyrir ofan.

Þvottaherbergi: Er snyrtilegt í endurnýjuðu bakhúsi á lóðinni. Sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Geymsla I: Er 5,2 fermetrar að stærð og er staðsett í góðu bakhúsi á lóðinni. 

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
61.900.000 kr.1016 þ./m²
+40,7% á 5 árum
1. desember 2021Þinglýstur kaupsamningur
44.000.000 kr.722 þ./m²
+28,7% á 2 árum
21. júní 2019Fyrsta sala
34.200.000 kr.562 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Framnesvegur 54

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð60,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
61.900.000 kr.1.016 þ./m²
Byggingarár1922InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2002289Fasteignamat58.750.000 kr.Brunabótamat34.710.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑