fasteignasölur.is
Galtalind 19
Opið hús 1. des. kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

Nýtt á skrá! Galtalind 19 Kópavogi - Rúmgóð 3ja herb. / Stórar svalir / Sér þvottaherbergi

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu fallega 91,1 fermetra 3ja herbergja íbúð í góðu og snyrtilegur fjölbýli við Galtalind 19 í Kópavogi. Tvö svefnherbergi og rúmgott alrými. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir til vesturs inn í skjólgóðan bakgarð hússins. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Geymsla er 5,9 fermetrar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og malbikuð sameiginleg bílastæði. Rafhleðslustöðvar eru komnar við sameiginleg bílastæði.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Lindunum í Kópavogi. Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum. 

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og gluggum til vesturs. Opin að hluta við eldhús. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til vesturs. 
Eldhús: Með flísum á gólfi og hvítri/viðar eldhúsinnréttingu. Stál Electrolux bakaraofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar til vesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og sturta. Innrétting við vask og skápar. Útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð, vaskur og þvottasnúrur.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.

Geymsla: Er staðsett á jarðhæð og er 5,9 fermetrar að stærð. 

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð hússins. Málað gólf, hjólasnagar og útgengi á framlóð.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Galtalind 19

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð91,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
74.900.000 kr.822 þ./m²
Byggingarár1998InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2231666Fasteignamat70.750.000 kr.Brunabótamat49.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑