fasteignasölur.is
Frjóakur 8
1 af 31

Um eignina

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaklega vel hannað og fjölskylduvænt einbýlis með innbyggðum bílskúr í Akrahverfinu í Garðabæ.
Frjóakur 8 er skráð 270 fm. skv. fasteignskrá HMS, auk 18,6 fm. garðstofu, bílskúrinn er 39 fm. og húsið sjálft 231,4 fm. allt á einni hæð. Húsið er staðsett innarlega í botnlanga á afar skjólsælum stað við grænt útivistarsvæði með leiksvæði og körfu- og fótboltavelli. Göngufæri er í leikskólann Akra, Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólann í Garðabæ auk þess sem íþróttasvæði og sundlaug eru í nágrenninu.

Húsið var byggt árið 2007 en nánast endurgert að innan árið 2015 eftir smekklegri hönnun Berglindar Berndsen innanhúsarkitekts þar sem vandaðar innréttingar og fallegt efnisval tryggja glæsilegt heimili með þarfir fjölskyldunnar í fyrirúmi.
Húsið er á einni hæð með afar góðu skipulagi en þar er forstofa, 4 svefnherbergi, 3 baðherbergi, stórar stofur, garðstofa og eldhús, þvottahús, bakdyra forstofa og innangengt í bílskúr.
Nánari lýsing;
Komið er inn í opna og bjarta forstofu með góðum fataskápum.
Hol/gangur opnast inn í stórt og skemmtilegt alrými þar sem stofur og eldhús njóta sín í 77 fm. rými annarsvegar og inn á svefnherbergisálmu hinsvegar. 
Stofurnar eru stórar og glæsilegar með mikili lofthæð, hljóðvistarplötur og innfelld lýsng í lofti og glæsilegur arinn sem felldur er inn í steini klæddan vegg setur sterkan svip á rýmið. Setustofa og borðstofa eru í einu flæði, borðstofan og eldhús eru samhliða með gólfsíðum gluggum með stórri rennihurð út í nýlega garðstofu (18,6 fm) sem flæðir áfram út á verönd meðfram vesturhlið hússins og út í afgirtan garðinn. Þetta hús er sannkallað veisluhús með góðri aðstöðu og flæði fyrir gesti og heimafólk.
Eldhúsið er veglegt, sérhannaðar innréttingar eru framleiddar af Hegg innréttingasmiðju, granít frá S. Helgasyni og vönduð eldhústæki frá Sie mens. Innrétting þekur heilan vegg, þar er m.a. pláss fyrir tvo ísskápa, innbyggða uppþvottavél, tvo ofna, innbyggður tækjaskápur er með rafmagni og gott geymslu pláss. Stór og glæsileg eyja, klædd graníti er með 80 cm. helluborði, vinnuaðstöðu og aðstöðu fyrir 5-6 til að sitja við er hjarta eldhússins. Léttur veggur milli  eldhúss og setustofunnar brýtur rýmið upp. Þá eru innbyggðar hillur og bekkur tilvalið fyrir heima vinnuaðstöðu.
Baðherbergi er í holi/gangi, það er flísalagt með "walk-in" sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu með handlaug.
Herbergin eru 4, 27 fm. hjónaherbergi/svíta og 3 barnaherbergi sem öll eru 11,8 fm.
Á svefnherbergisgangi eru tvö barnaherbergi og gott baðherbergi með baðkari og "walk-in" sturtu, innréttingu og glugga með opnanlegu fagi, glæsileg hjónasvíta er innst á ganginum. Þar er svefnherbergi með baðherberbergi með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og innréttingu með handlaug sem og innréttað fataherbergi. Fyrir framan hjónaherbergið er afdrep sem hentar vel sem vinnusvæði/heimaskrifstofa. Fjórða herbergið er staðsett næst forstofunni sem gæti hentað vel fyrir unglinginn. Sjónvarsphol/fjölskyldurými er fyrir framan herbergin og stúkar þannig af stofu og eldhúsrými frá svefnherbergjunum.
Þvottahús er vel innréttað með skápum og góðri aðstöðu, vélar í vinnuhæð. Bakdyra inngangur frá vesturhliðinni er rúmgóð auka forstofa með góðum fataskápum, það opnast inn í þvottahús og áfram inn í húsið sjálft - en einnig er þar innangengt í bílskúrinn.
Allt efnisval hefur samhljóm, sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi og forstofu eru frá Hegg, vandað, gegnheilt hnotuparket á gólfum þar sem ekki eru flísar (votrými og eldhús), innihurðir eru með aukinni hæð.
Bílskúrinn er breiður og nýtist vel þar sem innangengt er í hann frá þvottahúsi/bakdyra inngangi, hann flísalagður með gluggum á vesturhlið, heitu og köldu vatni og rafdryfinni hurð, skápar meðfram endavegg þjóna sem geymsla.
Garðurinn er glæsilegur og fullbúinn, garðstofan klædd náttúrusteini og hljóðvistarplötum, þykkar steinhellur/flísar eru samsvarandi og á palli fyrir framan húsið. Vandaður pallar úr viðhaldsfríu lerki með innbyggðri lýsingu og skjólveggjum skapa framhald af húsinu, þar er heitur pottur og gott útisvæði, lagt hefur verið fyrir útisturtu, 4 fm. útigeymsla fellur inn í skjólvegg fyrir aftan húsið.
Góð aðkoma er að húsinu sem er með hellulagt bílaplan fyrir allt að 4 bíla með hitalögn.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Valhöll
295.000.000 kr.1091 þ./m²
+233,3% á 11 árum
21. október 2015Fyrsta sala
88.500.000 kr.327 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Frjóakur 8

210 Garðabær
TegundEinbýlishúsStærð270,4 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.3
295.000.000 kr.1.091 þ./m²
Byggingarár2007InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2295928Fasteignamat279.600.000 kr.Brunabótamat202.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑