Um eignina
Um er að ræða mjög skemmtilega sérhæð í tvíbýlishúsi á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Eign er skráð samkvæmt FMR 106.2 fm en er samkvæmt teikningu 112 fm., verið er að klára nýja eignaskiptayfirlýsingu.
Sérinngangur er í íbúð og afgirt verönd til suðurs. Húseign lítur öll mjög vel út að utan og er nokkuð gott skipulag á íbúð.
Eignin stendur á 660 fm hornlóð við Skógargerði og Tunguveg.
ÍBÚÐ GETUR FENGIST AFHENT FLJÓTLEGA EFTIR KAUPSAMNING.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Íbúð skiptist í:
Forstofu/hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymsla og rúmgott sameiginlegt þvottaherbergi í kjallara.
Miklir möguleikar með sameiginlega rými í kjallara í samstarfi við aðra húseigendur.
Stutt er í leikskóla, skóla, alla þjónustu, íþróttar/útivistarsvæði og stofnbrautir.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol með góðum fataskápum.
Gengið er niður þrjú þrep í neðri stofu sem er mjög björt og er útgengt úr henni á suður-verönd.
Borðstofa er innaf forstofu og er hún opin inn í eldhús.
Eldhús er rúmgott með snyrtilegri eldhúsinnréttingu, efri og neðri skápar, tengi er fyrir uppþvottavél í innréttingu, steinn í borðplötum í innréttingu.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og er tvöföld hurð úr hjónaherbergi fram í aðalrými eignar.
Barnaherbergi er innaf herbergisgangi og eins er hurð þaðan inní hjónaherbergi.
Baðherbergi er með sturtuklefa og innréttingu í kringum vask með skápum.
Þriðja herbergið er í kjallara og er nokkuð rúmgott og er inngengt niður í það úr íbúð.
Geymsla í kjallara og mjög rúmgott sameiginlegt þvottaherbergi.
Hjólageymsla er sameiginleg fyrir utan hús.
Gólfefni: Parket, harðparket og flísar á gólfum eignar.
Húseign var múrviðgerð að utan árið 2026.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Skógargerði 2
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























