fasteignasölur.is
Huldugata 4  (108)
Opið hús 3. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 34

Um eignina

** Opið hús þriðjudaginn 3. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Íbúð 108 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
     
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 64,6 m2 2ja herbergja íbúð, merkt 01-0108, með sérinngangi á jarðhæð í nýlegu (byggingarár 2025) lyftuhúsi við Huldugötu 2-4 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Afgirt hellulögð verönd í suðurátt. Frábær staðsetning, stutt frá grunnskóla, leikskóla og næstu strætóstoppistöð. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu rými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnrétting frá HTH með blástursofni, spanhelluborði, viftu frá Airforce, ísskáp og uppþvottavél. Heimilistæki frá AEG. Úr stofu er gengið út á afgirta hellulagða verönd í suðurátt.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofni, sturtu með sturtugleri ásamt sambyggðri þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og með parketi á gólfi.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
 
Annað:
Huldugata 2-4 eru tvö 3ja hæða fjölbýlishús með 15 íbúðum hvor sem tengjast saman við hjóla- og vagnageymslu. Húsið er hannað af Garðari Snæbjörnssyni, arkitekt hjá GS-Teiknistofu ehf. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt. Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf.

Verð kr. 60.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Huldugata 4 (108)

270 Mosfellsbær
TegundFjölbýlishúsStærð64,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
60.900.000 kr.943 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurLyftaJáFasteignanúmerF2530600Fasteignamat56.550.000 kr.Brunabótamat44.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑