fasteignasölur.is
Hafnarberg 28
1 af 36

Um eignina

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og kynna í einkasölu Hafnarberg 28, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 3ja herbergja miðjuaðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á góðum stað í hjarta Þorlákshafnar. Birt stærð eignar er 108,8 fm og þar af er íbúðarhluti 78,8 fm og bílskúr 30 fm.  Fallegur garður með suður sólpall. Húsið stendur á góðum stað í grónu íbúðarhverfi miðsvæðis í Þorlákshöfn, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra helstu þjónustu.

Eignin býður upp á bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Eldhúsið er með nýrri, hvítri innréttingu og úr stofu er útgengt á sólpall til suðurs. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi, sem eykur þægindi við daglega notkun.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Eignin skiptist í anddyri, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innangengan bílskúr með geymsluaðstöðu.

Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengi út á suður sólpall, parket á gólfi. 
Eldhús: Í alrými, með nýrri hvítri innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, AEG bakaraofn og örbylgjuofn, háfur, helluborð, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og inn í sturtu. 
Þvottahús: Skápur og skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gönguhurð inn í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Bílskúrinn er 30 fm, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, rafdrifin bílskúrhurðaopnari, hiti, kalt vatn, epoxy á gólfi. Infrarauður klefi er í bílskúrnum sem fylgir með. Geymsla, búið er að opna úr bílskúr inn í geymslu, gönguhurð út á suður sólpall, flísar á gólfi. 

Húsið: Er byggt 2002 og er timburhús frá SG hús á Selfossi. 
Lóð: Framan við húsið eru malbikuð bílastæði. Á suðurhlið eignarinnar er ca. 50 fm. sólpallur og grasflöt sem skapa góða aðstöðu til útiveru og afslöppunar.

Hafnarberg 28 er áhugaverður kostur fyrir þá sem leita að vel skipulögðu raðhúsi á einni hæð með góðri nýtingu fermetra, innangengum bílskúr og útisvæði til suðurs. Hér fara saman þægilegt skipulag, björt íverurými og góð staðsetning í hjarta Þorlákshafnar.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Hafnarberg 28

815 Þorlákshöfn
TegundRað-/parhúsStærð108,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
66.600.000 kr.612 þ./m²
Byggingarár2002InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2258861Fasteignamat58.100.000 kr.Brunabótamat57.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑