fasteignasölur.is
Lundur 2
1 af 28

Um eignina

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 kynna einstaklega bjarta og fallega 2-3ja herbergja íbúð með suður verönd og stæði í bílageymslu við Lund í Kópavogi. 
Eignin er skráð 100,7 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þarf er íbúðin  sjálf  88,4 fm. og rúmgóð geymslan 12,3 fm. Stæði í upphitaðri bílageymslu merkt B13.
Nánari lýsing; 
Um er að ræða einstaklega bjarta og rúmgóða íbúð á 1. hæð frá inngangi  í húsið sem er vel staðsett í kjarnanum í Lundi í Kópavogi. En húsið stendur hátt og garðinum er íbúðin og gluggar á vesturhlið á 2. hæð.
Rúmgóð forstofa er með fataskápum upp í loft. Komið er inn í opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum í suður og vestur. Þar er eldhús, borðstofa og rúmgóð setustofa.
Eldhús er með eikarinnréttingu, eyju með eldavé og háf yfir, þar er gott skápa- og bekkpláss.
Borðstofa er í góðu fllæði næst eldhúsinu,  gengið er út á stóran suðurpall frá borðstofunni. Pallurinn sem snýr í há-suður er nýlega yfirfarinn, með góðum skjólfveggjum. Setustofa í framhaldi borðstofu er með góðum gluggum  sem tryggja mikið og gott birtuflæði inn í alrýmið og gefur íbúðinni létt yfirbragð. Á teikningu er gert ráð fyrir öðru svefnherbergi þar sem nú er sjónvarp og gluggasetning bíður upp á það
Rúmgott svefnherbegi með fataherbergi með góðum innréttingum er á gangi - örlítið aðskilið frá stofurýminu.
Baðherbergi er rúmgott með innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og stórum "walk-in" sturtuklefa.
Þvottahús er innst á ganginum, þar er innrétting og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara og gott hirslupláss.
Eikarparket er á gólfum fyrir utan baðherbergi og þvottahús sem eru flísalögð.
Þessi íbúð er rúmgóð með sérstaklega góðu aðgeng sem  gæti hentað hreyfihömluðum einstakling vel.
Sameign er einstaklega snyrtileg og vel hugsað um rekstur húsfélags.
Í sameign á jarðhæð eru geymslur, geymsla þessarar íbúðar er vel staðsett og rúmgóð (12,3 fm), sameiginleg vagna og hjólageymsla er á jarðhæð við inngang. Í bílageymslunni er búið að gera ráð fyrir hleðslu rafmagnsbíla auk þess sem þar er sér stæði fyrir bílaþvott með búnaði til þess.
Umhverfis húsið er gróin og frágengin lóð og aðkoma  hin snyrtilegasta.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Lundur 2

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð100,7 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
96.900.000 kr.962 þ./m²
Byggingarár2013InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2327136Fasteignamat96.800.000 kr.Brunabótamat75.660.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑