fasteignasölur.is
Haukanes 6
1 af 37

Um eignina

Þórhallur Biering fasteignasali sími 896-8232 og Betri Stofan kynna:  Glæsilegt 384,5 fm einbýli á tveimur hæðum á sjávarlóð/eignarlóð á Arnarnesinu. Hús í sérflokki og mikið endurnýjað.
Efri hæð : Tveir inngangar, stórar stofur, eldhús, baðherbergi. Tvöfaldur bílskúr.
Neðri hæð : Sér inngangur og stigi á milli hæða. Baðherbergi,hjónasvíta og fimm önnur svefnherbergi,geymsla og þvottahús. Garður allur tekinn í gegn sumarið 2023.
 
Efri hæðin: Komið inn aðal inngang hússins í gott anddyri og þaðan inn í alrými. Á vinstri hönd er setustofa og á hægri hönd er borðstofan, gott og vandað parket á gólfi. Stórir glugga í stofum og eldhús með útsýni út á Arnarnesvoginn. Þar innaf er rúmgott eldhús með nýlegri Miele innréttingu og tækjum, flísar á gólfi. Á hæðinni er einnig gott baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu. Bílskúrinn sem er 43,4 fm er mjög snyrtilegur og aðgengilegur. Góður stigi á milli hæða.
Neðri hæðin: 6 svefnherbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi innaf,vandað parket á gólfi svefnherbergja. Endurnýjað baðherbergi með góðri innréttingu og hornbaðkari. Rúmgóð geymsla. Af neðri hæð er útgegnt á skjólgóða verönd.
Lóðin: Er afar falleg,vel gróin og snyrtileg,skjólgóð verönd með skjólveggjum. Meginhluti garðsins er framan við húsið og snýr í suður.
Mjög góð hellulögð bílastæði fyrir framan bílskúr og til hliðar við hann.
 
Um er að ræða afar áhugaverða og góða eign á frábærum stað við sjávarsíðuna á Arnarnesinu.
 
Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is   
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Haukanes 6

210 Garðabær
TegundEinbýlishúsStærð384,5 m²Herbergi8Svefnherb.6Baðherb.3
340.000.000 kr.884 þ./m²
Byggingarár1979InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2070333Fasteignamat256.650.000 kr.Brunabótamat173.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑