Um eignina
Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og þvottaaðstöðu innan íbúðar. Birt stærð eignar skv.HMS er 99,7 m².
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Rúmgóð og björt. Flísar á gólfum Veglegir fataskápar.
Eldhús: Virkilega bjart og fallegt rými með góðri innréttingu og rúmu skápaplássi. Flísar á gólfi og á milli skápa. Aðstaða fyrir borðkrók og útgengi á suðursvalir.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott. Mikið skápapláss. Parket á gólfum.
Svefnherbergi II: Bjart og fallegt. Gólfsíðir gluggar. Útgengi á svalir.
Svefnherbergi III: Parketi á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, með sturtuklefa, góðri hvítri innréttingu og blöndunartækjum. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Endurbætur: Auk endurnýjunar baðherbergis hafa parket og innihurðir nýlega verið endurnýjað, ásamt borðplötu og hluta eldhústækja.
Hér er um að ræða virkilega fallega fjölskyldueign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, Bónus, Árbæjarlaug, íþróttastarf og aðra helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Rofabær 23
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























