fasteignasölur.is
Höfðabraut 10
1 af 55

Um eignina

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu gullfallegt heilsárs sumarhús í landi Vaðness í Grímsnesinu, ásamt gestahúsi. Húsið er staðsett efst í götunni og engin hús austan við það. Lóðin er stór eignarlóð. Húsið og gestahúsið eru á steyptum grunni. Hitaveita er á svæðinu og heitur pottur á pallinum. Stór og falleg eign á besta stað í Grímsnesinu, skammt frá golfvellinum í Kiðjabergi. Húsið fæst afhent við kaupsamning. 

Samtals fermetrafjöldi er 106,5 fm, aðalhúsið er 81,8 fm og gestahúsið er 24,9 fm samkvæmt skráningu HMS. Lóðin er skráð 7.745 fm hjá HMS.

Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.

Nánari lýsing eignar.

Aðkomaað svæðinu er í gegnum fjarstýrt bómuhlið.
Húsið stendur efst í botnlanga
Komið er inn í rúmgott flísalagt anddyri með skápum á hægri hönd. 
Stofa, borðstofa og eldhús eru í stóru alrými
Elsdhúsið er rúmgott me ðgóðri vinnuaðstöðu, hvítri innréttingu, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og stórri eyju.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar. 
Herbergi í aðalhúsinu eru þrjú, eitt er lítið og er inn af anddyrinu.
Herbergi tvö er stórt og rúmgott með hjónarúmi 
Herbergi þrjú er stórt og rúmgott með hjónarúmi.
Baðherbergið er flísalagt með rúmgóðri sturtu. Þaðan er útgengt út á pallinn og heita pottinn. 
Gestahúsið er stórt og rúmgott og er gengið inn í það í gegnum baðherbergið annars vegar og stofu/herbergi hins vegar. 
Baðherbergið er með sturtuklefa og upphengdu salerni og er útgangurinn út á pallinn við heita pottinn. 
Stofa/herbergi er stórt og rúmgott og er í dag vinnustofa listamanna. 
Inn af stofunni er lítið eldhús eða geymsla.
Stór viðarpallur er við bæði húsin og á milli þeirra. Heitur pottur stendur við aðalhúsið en er á milli húsanna. Á pallinum er geymsla fyrir útihúsgögn, grill og þess háttar. 
Lóðin er stór og vel gróin og mikið og gott útsýni er til allra átta.

Hér er eistaklega falleg og vel staðsett eign á ferðinni á besta stað í Grímsnesinu þaðan sem stutt er í ýmiskonar afþreyingu, þjónustu og náttúru. Sjón er sögu ríkar, hafið samband við Hallgrím Hólmsteinsson löggiltan fasteignasala í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og fáið allar nánari upplýsingar. sýningar á húsinu eru eftir samkomulagi. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Höfðabraut 10

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð106,7 m²Herbergi3Svefnherb.4Baðherb.2
69.900.000 kr.655 þ./m²
Byggingarár2008FasteignanúmerF2316144Fasteignamat76.050.000 kr.Brunabótamat76.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 55 myndir

Upp ↑