fasteignasölur.is
Hofsvík 5
1 af 44

Um eignina

RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir:
Hofsvík 5, 805 Selfoss – Heilsárshús á einni hæð á 5.100 m² lóð í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Um er að ræða 96 m² frístundahús samkvæmt þjóðskrá Íslands með þremur svefnherbergjum, opnu alrými og góðri verönd. Húsið er timburhús á einni hæð, klætt dökkri viðarklæðningu, með svörtu bárujárnsþaki. Stórir gluggar veita góða náttúrulega birtu og útsýni yfir nærliggjandi umhverfi.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.is


Eignin er skráð sem sumarhús í Grímsnesi nánar tiltekið í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs sem er um 45 mín akstur frá Reykjavík. 

Nánari lýsing eignar:
Anddyri
: Rúmgott anddyri með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Stofa og eldhús: Opin og björt rými með stórum gluggum og útgengi á verönd. Harðparket á gólfi og sýnilegur viðarbiti í lofti.
Eldhúsinnrétting er með viðaráferð, ljósri borðplötu, helluborði og innbyggðum bakarofni.
3 Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Fataskápar eru í herbergjum og útgengi á verönd úr einu þeirra.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu með glerþili, upphengdu salerni, hvítri vaskinnréttingu og speglaskáp.
Gestasalerni: Flísalagt gestasalerni með upphengdu salerni og hvítri vaskinnréttingu.
Tæknirými: Sérstakt tæknirými með tengi fyrir þvottavél
Húsið er upphitað með gólfhita.

Lóð og umhverfi: Húsið stendur á 5.100 m² lóð. Við húsið er rúmgóð timburverönd með aðgengi úr alrými. Umhverfið einkennist af opnu landslagi og víðsýni. Aðkoma er að húsinu með bílastæðum á lóð.  Húsið er á skipulögðu frístundahúsasvæði sem er með aðgangsstýrðu rafmagnshliði (fjarstýring/ sími)

Annað: 
# Lóðin er fallega staðsett með fallegu útsýni.
# Öryggishlið inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.
# Rotþró í jörðu. 
# Hitaveita er á svæðinu.
# Sumahúsfélegsgjald er um 25.000.kr á ári. Innfalið í því er reglulegur snjómokstur sem þýðir að hægt er að nota húsið yfir allt árið.​​​​​​

Húsið afhendist fullbúið á byggingarstigi 7. 
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt.


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Hofsvík 5

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð96 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
75.900.000 kr.791 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2344318Fasteignamat73.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑