fasteignasölur.is
Elliðabraut 4
Opið hús 5. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 46

Um eignina

Rúmgóð og björt 5 herbergja íbúð með stæði í bílageymslu og bílskúr í nýlegu lyftuhúsi við Elliðabraut 4 í Norðlingaholti. Aukin lofthæð er í eigninni. Tvennar svalir. Tvö baðherbergi. Fjögur rúmgóð svefnherbergi. Eldhús með búri. 
Bílskúr í bílakjallara ásamt bílastæði með rafmagnshleðslustöð í stæðinu. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 180,6 fm. og þar af er bílskúr 25,6 fm. auk bílastæðis sem ekki er inn í fermetratölu eignarinnar. 

Nánari lýsing eignar:

Komið er inn í húsið Elliðabraut 4 og frá stigagangi hússins er gengið út á utanáliggjandi svalagang sem er í miðjuhring hússins. Íbúðin er á enda svalagangsins og því engin önnur íbúð sem gengur upp að henni.
Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi sem ná upp í loft, glugga og parket á gólfi. 
Gangur liggur að alrými íbúðarinnar með parketi á gólfi. Út frá ganginum er aðalbaðherbergið og þrjú af svefnherbergjunum íbúðarinnar.  
Baðherbergi með innangengri sturtu, glugga, góðri innréttingu með borðplötu úr stein með innbyggðum vask, handklæðaofn og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á veggjum í sturtuklefa og á gólfi. 
Stofa/borðstofa eru saman í opnu rými með glugga á þrjá vegu sem gera rýmið einstaklega bjart og opið. Eldhúsið er samliggjandi borðstofunni í opnu rými frá stofunni. Parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr stofunni. 
Eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, ásamt eyju með helluborði sem skilur eldhúsið frá borðstofunni. Parket á gólfi. 
Búr er á bak við eldhúsið með innbyggðum frystiskáp miklu skápaplássi ásamt vinnuvaski og hillum. Hægt er að tengja auka uppþvottavél í búrinu eða breyta því í þvottaherbergi ef aðilar kjósa það. Gengið er út á svalir sem snúa inn í lokaðan sameiginlegan hring hússins.  
Hjónaherbergi með baðherbergi
Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og parkt á gólfi. Inn af hjónaherberginu er sér baðherbergi. Baðherbergið er með góðri innréttingu undir vaskaborði sem er með steinborðplötu og vaski. Fyrir ofan vaskaborðið er tvöfaldur speglaskápur. Fallegar gráar flísar eru á gólfi og inni í sturturýminu. Salernið er upphengt með innbyggðum vatnskassa í vegg.
Barnaherbergin eru þrjú öll rúmgóð með góðum fataskápum sem ná upp í loft og parket á gólfi. 
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 5,2 fm. 
Bílskúr er inn í bílageymslunni og bílastæði fyrir framan bílskúrinn með rafmagnsbílahleðslu.

Sameign er mjög snyrtileg og gott aðgengi er í húsinu. 
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. 

Hverfið Norðlingaholt er staðsett í nágrenni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur, Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is eða Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Elliðabraut 4

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð180,6 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
129.400.000 kr.717 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2509639Fasteignamat117.850.000 kr.Brunabótamat122.160.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑