fasteignasölur.is
Ásgarður 73
Opið hús 8. nóv. kl. 17:00–17:20
1 af 40

Um eignina

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4-5 herbergja íbúð á 1. hæð við Ásgarð 73 í Reykjavík. Eigninni fylgir stakstæður 25,2 fm bílskúr auk rúmgóðs herbergis og sérgeymslu í kjallara sem eru utan skráðra fermetra eignarinnar. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu Bústaðahverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og falleg útivistarsvæði. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Björt og rúmgóð rými, gott skipulag og fallegt alrými með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Loft hefur verið tekið niður að hluta með innfelldri lýsingu. Íbúðin hefur verið töluvert endurbætt en þá voru allir gluggar, gler og svalahurð íbúðarinnar endurnýjuð árið 2011. 

Birt stærð eignarinnar er 144,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er íbúðarhlutinn 119 fm og bílskúr 25,2 fm. Auk þess fylgja eigninni rúmgott herbergi og sérgeymsla í kjallara sem eru ekki innifalin í skráðum fermetrum eignarinnar, samtals um 15 fm.

Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu og borðstofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, salerni og geymslu. Í kjallara eru rúmgott herbergi og sérgeymsla auk hlutdeildar í sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymslu og snyrtingu. Eigninni fylgir jafnframt 25,2 fm bílskúr.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Nánari lýsing
Forstofa/hol
er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með ljósri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og tengi fyrir uppþvottavél, gráar flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými, parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Sjónvarpshol innaf stofu og borðstofu eða auka svefnherbergi, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi II og III með fataskápum og bæði rúmgóð, parket á gólfum.
Baðherbergi með góðri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu, flísar á gólfi og veggjum.
Gestasalerni með handlaug og upphengdu salerni.

Herbergi í kjallara er rúmgott með glugga og nýlegum fataskápum (utan skráðra fermetra íbúðarinnar). Aðgangur er að sameiginlegu baðherbergi í kjallara.
Sérgeymsla í kjallara, með hillum (utan skráðra fermetra eignarinnar).
Sameiginlegt þvottahús í kjallara, aðeins fyrir 3 íbúðir og hver íbúð með aðstöðu fyrir eigin þvottavél. Inn af þvottahúsinu er rúmgott þurrkherbergi með þvottasnúrum.
Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara með útgengi á baklóð.
Sameiginleg snyrting er í kjallara með handlaug, salerni og sturtu, flísar á gólfi.

Bílskúr er 25,2 fm og stendur ofan við fjölbýlishúsið. Þar er bæði heitt og kalt vatn, epoxy sett á gólfið 2024. Bílskúrarnir voru klæddir að utan og bílskúrshurðir endurnýjaðar á árunum 2018–2019.

Helstu framkvæmdir á húsinu og í sameign:
2013: Skólplagnir yfirfarnar og fóðraðar.
2014: Stigagangur málaður og teppalagður ásamt málun þvottahúss og þurrkherbergis.
2018–2019: Bílskúrar klæddir og bílskúrshurðir endurnýjaðar. Suður- og vesturhlið fjölbýlishússins málaðar og skipt um glugga eftir þörfum.
2020–2021: Lýsing í kjallara endurnýjuð.
2021: Nýr dyrasími settur upp. Sameiginleg snyrting í kjallara endurbætt með nýju salerni, sturtu, flísalögn og málun.
2022: Þvottahúsgangur flísalagður og málaður ásamt hurðum. Nýtt niðurfall sett á norðurhlið og útiljós á vesturgafl.
2024: Norðurhlið fjölbýlishússins máluð.

Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa verið áætlaðar framkvæmdir árið 2026 við útgang norðan megin, malbikun á norðurhlið og uppsetningu grindverks milli skúra en þá er til fyrir þessum framkvæmdum í framkvæmdasjóð.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.


Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 

Ásgarður 73

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð144,2 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
99.500.000 kr.690 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2036129Fasteignamat92.000.000 kr.Brunabótamat79.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑