fasteignasölur.is
Nýbýlavegur 10A
1 af 28

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu: Virkilega fallega og nýlega tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð að Nýbýlavegi 10A í Kópavogi. Vel skipulögð íbúð með stæði í lokaðri bílageymslu og svölum til suðurs.

Íbúðin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og geymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 50,3 m2  þar af er íbúðin 45,2 m2 og geymslan 5,1 m2.


Nánari lýsing:
Forstofa með parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, baðinnrétting, spegill með lýsingu og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergið er rúmgott með parket á gólfi og fataskápur.
Stofan með parket á gólfi með útgengi út á svalir sem snúa til suður.
Eldhúsið er opið við stofu með parket á gólfi. Falleg innrétting, innfelld uppþvottavél og spanhelluborð. Innfelld lýsing í lofti.
Geymsla í sameign.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi:

Annað:
Húsið var byggt árið 2020 af JÁVERK ehf. Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhaldið. Húsið er einangrað að utan, klætt með sléttu og báruðu áli og gluggar eru ál-tré. Innréttingar og eldhústæki frá Bræðrunum Ormsson – HTH innréttingar. Flísar á baðherbergjum frá Álfaborg og innihurðir frá Parka.

Eignin er frábærlega staðsett, en öll þjónusta rétt innan seilingar. Í götunni er að finna Bónus, bakarí, veitingastaði og apótek. Þá eru samgöngutengingar góðar og stutt í ýmsa útivistarmöguleika s.s. Fossvogsdal, Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Heilsugæslan, Tónlistarhús Kópavogs og Gerðarsafn ásamt annari þjónustu í Hamraborg er í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veitir:  Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali s. 893-9929 eða pall@betristofan.is
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Nýbýlavegur 10A

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð50,3 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
56.900.000 kr.1.131 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2508507Fasteignamat55.700.000 kr.Brunabótamat47.030.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑