fasteignasölur.is
Barónsstígur 27
1 af 11

Um eignina

Barónsstígur 27, 101 Reykjavík

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:


Til sölu er áhugavert og vel staðsett 37,5 fm verslunar- og atvinnuhúsnæði á jarðhæð við Barónsstíg 27 í Reykjavík.
Um er að ræða skemmtilega horneign á áberandi stað við horn Barónsstígs og Grettisgötu, þar sem sýnileiki, gott aðgengi og lifandi miðborgarumhverfi skapa spennandi tækifæri fyrir smásölu, þjónustu eða sambærilega starfsemi.

​*Smelltu hér til að fá söluyfirlit núna*

Ásett verð: 37,9 millj. kr.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala
Sími: 661 7788
Netfang: bo@stofnfasteignasala.is

Húsnæðið hefur um árabil hýst Söluturninn Vikivaka, sem margir þekkja sem hluta af götumynd og mannlífi miðborgarinnar. Hér er því um að ræða fasteign með sterka sögu og skýra tengingu við rótgróinn sölustað í miðbænum. Kaupandi getur haldið áfram með sambærilegan rekstur í húsnæðinu og möguleiki er á að heitið Vikivaki fylgi, verði um það sérstaklega samið.

Eignin að Barónsstíg 27, 101 Reykjavík, fastanúmer 200-5592, er skráð samkvæmt fasteignaskrá sem 37,5 fm verslunarhúsnæði, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu.

ATH:
Um er að ræða sölu á fasteign / atvinnuhúsnæði. Ekki er verið að selja rekstrarfélag, kennitölu félags eða skuldbindingar tengdar núverandi rekstri.
Möguleiki er á að innanstokksmunir, búnaður og heitið Vikivaki geti fylgt samkvæmt nánara samkomulagi aðila. Kaupandi getur því tekið við húsnæðinu með það fyrir augum að reka þar sambærilega starfsemi, án þess að um yfirtöku rekstrarfélags sé að ræða.

Helstu kostir:
• Áberandi horneign við Barónsstíg og Grettisgötu
• 37,5 fm verslunar- og atvinnuhúsnæði á jarðhæð
• Gott aðgengi og góð sýnileiki frá götu
• Lifandi miðborgarumhverfi með gangandi umferð
• Húsnæði sem hefur um árabil hýst þekktan söluturn
• Hentar vel fyrir smásölu, þjónustu eða sambærilega starfsemi
• Möguleiki á að innanstokksmunir, búnaður og heitið Vikivaki fylgi samkvæmt samkomulagi

Húsnæðið skiptist í:
Bjart afgreiðslu- og verslunarrými að framan með góðri tengingu við götu og hagnýtt bakrými/lager að aftan með aðstöðu fyrir kæla, undirbúning og geymslu. Salernisaðstaða er í bakrými.

Nánari lýsing:
Verslunarrýmið er bjart og vel nýtt, með góðri lýsingu og snyrtilegu skipulagi. Stór hluti rýmisins nýtist sem afgreiðslu- og sölurými, en bakrýmið nýtist vel fyrir lager, vinnuaðstöðu og rekstrartengdan búnað.

Staðsetning:
Eignin er á áberandi hornstað við Barónsstíg og Grettisgötu í miðbæ Reykjavíkur. Staðsetningin hentar vel fyrir starfsemi sem nýtur góðs af sýnileika, aðgengi og nálægð við mannlíf miðborgarinnar.
Þetta er gott tækifæri fyrir aðila sem sér möguleika í litlu en vel staðsettu atvinnurými í hjarta miðbæjarins, hvort sem horft er til áframhaldandi verslunarstarfsemi, sérhæfðrar þjónustu eða nýrrar hugmyndar sem nýtir staðsetninguna og sýnileikann vel.

Nánari upplýsingar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala.
Sími: 661 7788
Netfang: bo@stofnfasteignasala.is


Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Barónsstígur 27

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð37,5 m²
37.900.000 kr.1.011 þ./m²
Byggingarár1932FasteignanúmerF2005592Fasteignamat30.300.000 kr.Brunabótamat19.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑