fasteignasölur.is
Hásteinsvegur 30
1 af 10

Um eignina

Valhöll kynnir: Afar spennandi uppbyggingar- og þróunarverkefni á hágæða gistingu með einstakri upplifun á 2.196,8 fm sjávarlóð á Stokkseyri. Nýlega samþykkt deiliskipulag gerir ráð fyrir fimm glæsilegum tveggja hæða timburhúsum og er heimild fyrir bæði íbúðum og gististafsemi í flokki I og II sem gefur kaupendum og fjárfestum sveigjanleika í nýtingu. Heildarbyggingarmagn er 615 fm. og er gert ráð fyrir 7 bílastæðum á lóð. 

Fáar lóðir á Suðurlandi liggja jafn nálægt hafinu innan rótgróins þorps.

Miklir tekjumöguleikar eru fyrir hendi meðal annars af rekstri hágæða gistingar á svæðinu með miklum íburðum og einstakri upplifun. 

Hönnun Arkitektastofunnar Undra liggur fyrir. Fullsamþykkt deiliskipulag liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um verkefnið svo sem sölukynnningu, skipulagsgögn, frumhönnunargögn ofl. má nálgast hjá fasteignasala.


Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Hásteinsvegur 30

825 Stokkseyri
TegundJörð/LóðStærð615 m²
Tilboð
Byggingarár1939FasteignanúmerF2199746Fasteignamat7.410.000 kr.Brunabótamat18.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 10 myndir

Upp ↑