fasteignasölur.is
Úugata 5
1 af 22

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Sýnum samdægurs - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Úugötu 5 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 169,9 m2, þar af íbúðarhluti á tveimur hæðum 145,4 m2 og bílskúr 24,5 m2.  Á neðri hæð er forstofa, svefnherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymsla og bílskúr. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Svalir í suðurátt og fallegt útsýni er af efri hæðinni. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Vel skipulagt fjölskylduhús á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ.

Eignin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu seljanda í mars 2027. Vandaðar innréttingar frá Nobilia/GKS trésmiðju, með áferðum í hnotu og hvítu, og kvartsborðplötur í eldhúsi. Eldhústæki eru frá Siemens og spanhelluborð frá BORA með innbyggðum háfi. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja. Húsið er með gólfhitakerfi með þráðlausri stýringu. Loftskiptakerfi er í húsinu. Lóð verður fullfrágengin með hellulögðum stéttum og þökulögðum grasflötum samkvæmt teikningum. Sjá nánar í skilalýsing seljanda.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Smelltu hér til að fara á heimasíðu Úugötu 3-9.


Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu frá Nobilia/GKS trésmiðju, í hnotu og hvítu, og kvartsborðplötu. Spanhelluborð frá BORA með innbyggðum háfi er fellt niður í borðplötu. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja. Önnur eldhústæki eru frá Siemens.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Úr eldhúsi er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú (2 á efri hæð og 1 á neðri hæð) og eru með fataskápum.
Baðherbergin eru tvö og eru með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og sturtu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi.
Gestasalerni er á neðri hæð, með flísalögðu gólfi og vegghengdu salerni.
Þvottahús er með flísum á gólfi, innréttingu með skolvaski og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er með steyptu og vélslípuðu gólfi. Bílskúrshurð er með sjálfvirkum opnunarbúnaði með fjarstýringu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla við hvern bílskúr.

Annað:
Húsbyggjandi og aðalverktaki er Gerð ehf. Húsið er staðsteypt, einangrað með steinull og klætt að utan með álklæðningarkerfi og bambusklæðningu. Gluggar, svalahurðir og inngangshurðir eru úr ál/tré.Innihurðir eru hvítar frá Grauthoff. Flísar eru frá Ceramiche Piemme, af gerðinni Journey í litnum Otta Natural, 60 × 60 cm, frá Álfaborg. Húsið er upphitað með gólfhitakerfi og handklæðaofnar eru á baðherbergjum. Rafrænt loftskiptikerfi er í húsinu og ljósleiðari verður til staðar. Lóð verður fullfrágengin með hellulögðum stéttum og þökulögðum grasflötum samkvæmt teikningum. Ídráttarrör eru út í baklóð fyrir vatn og eða auka lýsingu. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Sjá nánari upplýsingar í skilalýsingu seljanda.

Verð kr. 137.500.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Úugata 5

270 Mosfellsbær
TegundRað-/parhúsStærð169,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.3
137.500.000 kr.809 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2524834Fasteignamat75.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑