fasteignasölur.is
Brekkustígur 8
1 af 27

Um eignina

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir fallega og vel skipulagða 3. herbergja íbúð á 1. hæð í litlu snyrtilegu fjölbýlishúsi við Brekkustíg 8 í Reykjavík. Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni arkitekt. Íbúðin er skráð 80fm skv. HMS og sérgeymsla í sameign 3,9fm, samtals 83,9fm. Íbúðin skiptist í gang, eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu. 

Nánari lýsing;
Forstofa/hol með fatahengi, parket á gólfi.
Eldhús og stofa eru í opnu alrými, stórir gluggar í suður tryggja gott flæði á birtu.
Eldhús með viðar innréttingu, gott borðpláss,tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofan er björt með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með innbyggðum fataskápum upp í loft, parket á gólfi.
Herbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt gólf, og flísalagt í kringum baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting við vask, handklæðaofn, gluggi.
Sér geymsla með hillum í Í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús í kj. þar sem hver er með sína vél.
Affallið af húsinu er leitt undir gangstéttina, þannig að það á jafnan að vera snjólaust fyrir framan húsið.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Brekkustígur 8

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð83,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
73.900.000 kr.881 þ./m²
Byggingarár1959InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2000943Fasteignamat68.850.000 kr.Brunabótamat41.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑