fasteignasölur.is
Flekkudalsvegur 18
1 af 35

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala í Kjósahreppi kynna:

Fallegt sumarhús á eignarlóð með hitaveitu við Meðalfellsvatn í Kjósahreppi.

Húsið er byggt 1988 og hvílir á 937 fm gróinn eignarlóð.

Eignin er með birta fm 57,7 en heildargólfflötur rýma (sumir undir súð/lægri lofthæð) er alls um 89,2 fm að fullri gólfstæð.

Afhending eignar getur verið við undirritun kaupsamnings og fylgir eigninni allir lausamunir sem sýndir eru við skoðun.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Skipting nothæfra innirýma er:
Grunnflötur aðalhús jarðhæð = 43,5 fm.
Sólskáli aðalhús, jarðhæð = 8,2 fm.
Efri hæð í aðalhusi með grunnflöt = 17,6 fm (hluta til undir súð/lægri lofthæð og því birtir fm 3,8 fm).
Geymsla á efri hæð aðalhúss = 6,4 fm (hluta til með lægri lofthæð og því birti fm 2,2 fm).
Óskráð vinnustofa/gestahús, u.þ.b. = 13,5 fm.

Til viðbótar eru svo á baklóð geymsluskúrar, hæsnakofi og ýmis geymslurými sem ekki eru talin upp í stærð.

Hægt er að sjá rekstrarkostnað með því að panta söluyfirlit frá fasteignasala!

Nánari lýsing:
Lóð er 937 fm, vel gróin með trjágróðri og góðum grasblett. Gengið er upp á verönd og inn í forstofu. Baðherbergi er með vaski, hirslum, wc og sturtuklefa. Á neðri hæðinni er eitt svefnherbergi. Eldhús er að hluta til opið við stofu, efri og neðri skápar, pláss fyrir uppþvottavél (sú sem fylgir með er biluð), stofa/borðstofa er bjart með fallegu útsýni út í garðinn, kamína, upptekið loft og gengið út í sólstofuna. Úr forstofu er gengið upp á efri hæð, þar er svefnloft og hægt að fara úr því út um glugga á efri svalir og inn í geymslu sem stendur fyrir ofan geymslu neðri hæðar. Veröndin er svo á tvo vegu við húsin, móti vestri og suðri, góður skjóveggur umlykur svæði milli húsa þar sem heitur pottur er. Við sama svæði stendur svo óskráða húsið sem nýtt hefur verið sem vinnurými/gallerí en auðvelt er að nýta sem gestahús. Góður grasflötur er og skjólsæl lóð með mikið af trjám. Á baklóð hússins eru svo fleir geymsluskúrar og hæsnakofi ásamt inntakskassa fyrir hitaveitu og lagnir. Brunnur er úti á lóð frá gamalli tíð sem virkar og er nýttur til vökvunar.

Eignin er svo með girðingu allan hringinn og gott næði þrátt fyrir að vera í sumarhúsahverfi. Stutt er niður að Meðalfellsvatni og einnig rennur falleg lítil á (Sandsá) stutt frá út í vatnið. 

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

Flekkudalsvegur 18

276 Kjós
TegundSumarhúsStærð89,2 m²Herbergi3Svefnherb.3Baðherb.1
39.900.000 kr.447 þ./m²
Byggingarár1988FasteignanúmerF2085808Fasteignamat34.450.000 kr.Brunabótamat22.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑