fasteignasölur.is
Selvogsgata 17
Opið hús 8. nóv. kl. 15:00–15:30
1 af 47

Um eignina

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið endurnýjaða 141 m² eign við Selvogsgötu 17 með fjórum útleigueiningum í núverandi nýtingu. Þriggja herbergja íbúð á 2. hæð, tvær tveggja herbergja íbúðir í kjallara og sjálfstæður skúr á lóðinni. Sérafnot fylgja eignarhlutanum af rúmgóðum palli fyrir aftan húsið.
Heildarstærð eignarinnar er 141,8 m².

Eign með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum, meðal annars til eigin búsetu samhliða útleigu.

– Fjórar útleigueiningar í núverandi nýtingu.
– Tvö svefnherbergi í íbúð á 2. hæð.
– Tvær aðskildar einingar í kjallara, gerðar 2020 og 2024.
– Skúr settur á lóðina og innréttaður árið 2024.
– Sérafnot af palli fyrir aftan húsið, gerðum 2022.
– Húsið múrviðgert 2020 og málað 2021.
– Þakjárn endurnýjað 2024


Nánari lýsing íbúðar á 2. hæð - 59,9 m²
Gengið er inn um sameiginlegt anddyri með íbúðinni á hæðinni fyrir neðan. Stigi liggur upp á 2. hæð og er stigapallurinn séreign íbúðarinnar.
Hol tengir saman rými íbúðarinnar og er með viðarlituðu gólfefni sem flæðir áfram um eldhús, stofu og svefnherbergi.
Stofan er björt með gluggum á tveimur hliðum og aðstöðu fyrir setustofu.
Eldhúsið var endurnýjað 2019 og er með hvítum neðri skápum, dökkum efri skápum, ofni, helluborði og aðstöðu fyrir uppþvottavél. Við eldhúsið er pláss fyrir borðstofuborð.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð og bæði með fataskápum.
Baðherbergið er með sturtuklefa, upphengdu salerni, vaskskáp, handklæðaofni og glugga til loftunar. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í turni. Dökkar veggklæðningar og viðaráferð setja svip á rýmið.
Geymsluloft er yfir íbúðinni, með aðgengi um lúgu og stiga frá holi.

Nánari lýsing íbúðar 2 í kjallara – gerð 2020 - 32,7 m²
Einingin var gerð frá grunni árið 2020. Við framkvæmdirnar var gólfið grafið niður að hluta, einangrað og steypt plata með gólfhita. Sérinngangur er fyrir aftan húsið.
Eldhúsið er með gráum neðri skápum og hvítum efri skápum, góðu skápaplássi, ofni í vinnuhæð og örbylgjuofni. Aðstaða er fyrir borðstofuborð og flísar á gólfi.
Stofan er með flísum á gólfi, glugga að bakgarði og viðarrimlum á einum vegg.
Svefnherbergið er með glugga og viðarlituðu gólfefni. Fataskápur er við inngang einingarinnar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, salerni, vaskskáp, speglaskáp og handklæðaofni.

Nánari lýsing íbúðar 3 í kjallara – gerð 2024 - 30,8 m²
Einingin var útbúin árið 2024 og er með flísum á gólfum.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Eldhúsinnréttingin er hvít með dökkri borðplötu, ofni og helluborði. Aðstaða er fyrir lítið borðstofuborð og setustofu. Útidyr með gleri og gluggar veita birtu inn í rýmið.
Svefnherbergið er með ljósum flísum á gólfi og glugga.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, upphengdu salerni og vaskskáp með spegli fyrir ofan.

Nánari lýsing skúrs á lóð – innréttaður 2024 - 18,4 m²
Skúrinn var fluttur á lóðina árið 2024 og innréttaður sama ár. Skúrinn sjálfur var ekki nýr við uppsetningu. Hann er einangraður, með sérinngangi.

Lóð og útisvæði:
Fyrir aftan húsið er rúmgóður timburpallur og fylgja eignarhlutanum sérafnot af honum. Þaðan er aðgengi að einingum í kjallara og skúrnum.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali, í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Selvogsgata 17

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð141,8 m²Herbergi8Svefnherb.5Baðherb.4
114.900.000 kr.810 þ./m²
Byggingarár1934FasteignanúmerF2078738Fasteignamat84.600.000 kr.Brunabótamat77.220.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑