fasteignasölur.is
Safamýri 71
Nýtt
1 af 36

Um eignina

Miklaborg kynnir:

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 123 fm efri sérhæð auk 24 fm bílskúrs sem hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð eða alls 147 fm

NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri og gengið upp steinsteyptan stiga upp á stigapall. Þaðan er gengið inní alrými. Eldhús er með nýlegri svartbæsaðri innréttingu frá HTH með innbyggðri uppþvottavél, tvöföldum ísskáp og tveir ofnar. Eldhúsið er opið að hluta inn í stofurnar og er það aðskilið frá með eldunareyju. Stofan er björt og skipstist upp í stofu og borðstofu. Stórir gluggar í suður. Útgengt er úr stofu á stórar suðursvalir. Svefnherbergisgangur. Rúmgóður svefnherbergisgangur. Tvö góð barnaherbergi ásamt rúmgóðu hjónaherbergi. Baðherbergið er nýlega endurnýjað og er með sturtu, upphengdu salerni og góðri innréttingu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Í kjallara er góð geymsla og sameignlegt þvottahús. Sameign var nýlega máluð.

Eigninni fylgir 24 fm bílskúr sem hefur verið breytt í stúdíóíbúð sem svefnkrók, baðherbergi með sturtu og lítlli eldhúsinnréttingu.


GÓLFEFNI: Nýlegt parket er á öllum gólfum nema baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf.


Að sögn eiganda hefur húsið sem og íbúðin verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Skólp og drenlögn var endurnýjuð nýlega, nýtt járn, pappi og timbur að hluta í þaki endurnýjað. Ný máluð sameign og ný rafmagnstafla. Flestir gluggar hafa verið endurnýjaðir.


FRÁBÆR EIGN SEM HEFUR VERIÐ MIKIÐ ENDURNÝJUÐ


Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is



Safamýri 71

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð147,2 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
126.900.000 kr.862 þ./m²
Byggingarár1963InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2014545Fasteignamat107.000.000 kr.Brunabótamat75.720.000 kr.
Skráð hjá
Ingimundur Kristján IngimundarsonLöggiltur fasteignasali867-4540 · Ingimundur@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑