fasteignasölur.is
Tröllateigur 47
Opið hús 5. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 34

Um eignina

** Opið hús fimmtudaginn 5. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 100,7 m2, 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð við Tröllateig 47 í Mosfellsbæ.  Eignin er skráð 100,7 m2, þar af íbúð 93,5 m2 og geymsla 7,2 m2. eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign. Stór timburverönd í vesturátt og fallegt útsýni. Búið er að setja upp rafhleðslustöðvar á bílastæði fyrir framan húsið.
Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.

Endurbætur sem hafa verið gerðar samkvæmt seljanda: Þakið var yfirfarið fyrir nokkrum árum. Gert við svalir og tröppur framan á húsinu fyrir um 3 árum. Tréverk málað að utan fyrir um 2 árum. Skipt um öll ljós í sameign og útiljós á þessu ári. Hleðslustöðvar sett upp á þessu ári.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi. 
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, innbyggð uppþvottavél, helluborð, vaskur og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. 
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á stóra timburverönd.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, með fallegri ljósri innréttingu. Upphengdu salerni, baðkari og sturtu.
Þvottarhús er með hillum, flísar á gólfi. Gluggi er á þvottahúsi.
Sérgeymsla er í sameign. Skráð 7,2 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Verð kr. 81.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Mosfellsbæjar
81.900.000 kr.813 þ./m²
+134,0% á 11 árum
19. febrúar 2016Fyrsta sala
35.000.000 kr.348 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tröllateigur 47

270 Mosfellsbær
TegundFjölbýlishúsStærð100,7 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
81.900.000 kr.813 þ./m²
Byggingarár2004InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2271461Fasteignamat71.100.000 kr.Brunabótamat58.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑