fasteignasölur.is
Laxakvísl 2
Opið hús 6. nóv. kl. 12:30–13:00
1 af 29

Um eignina

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ KOMU í OPIÐ HÚS **

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. (salvor@remax.is) KYNNA:
Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Laxakvísl 2 í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Ártúnsholti. 

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR
  • 93,4 m² vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.
  • Tvö rúmgóð svefnherbergi og bjart alrými.
  • Suðursnúinn garður með verönd og aðgengi út í lóð.
  • Lítið og snyrtilegt fjölbýlishús, aðeins fjórar íbúðir í stigagangi.
  • Umfangsmiklar framkvæmdir á þaki og gluggum í sameign árið 2026.
  • Vel rekið húsfélag og snyrtileg sameign.
  • Rólegt og fjölskylduvænt umhverfi, stutt í skóla, þjónustu og útivist.
  • Góðir leigjendur eru í eigninni - hafa áhuga á áframhaldandi leigu, sé þess kostur.

** SMELLTU HÉR fyrir EIGNAMÖPPU / SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS **
** SMELLTU HÉR FYRIR SKRÁNINGU Í OPIÐ HÚS föstudaginn 6.nóv. kl.12:30 - ATH! skrá þarf mætingu fyrirfram ** 

Ef forföll verða biðjum við um að þau séu tilkynnt svo við getum tekið tillit til þess við skipulagningu sýningarinnar.
Berist engar skráningar fellur opna húsið niður með 24 klst. fyrirvara.


Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Salvör Þóra löggiltur fasteigna- og skipasali s: 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna


NÁNAR UM EIGN
Eignin e skráð 93,4 m² hjá Fasteignamati Ríkisins og samanstendur af rúmgóðu alrými og eldshúsi, 2 svefnherbergjum, þvottahúsi innan eignar, baðherbergi, sérgeymslu og hjóla/vagnageymslu í sameign ásamt góðri suðurverönd með aðgengi að sameiginlegum  grónum garði. Húsið hefur nýverið fengið gott viðhald að utan. 

NÁNARI LÝSING
Forstofa: Komið er inn í bjart og rúmgott hol með góðu aðgengi að öðrum rýmum eignarinnar.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með góðum gluggum og viðarparketi á gólfi. Rýmið býður upp á fjölbreytta möguleika við uppröðun húsgagna og góða aðstöðu fyrir bæði setustofu og borðstofu. Auðvelt að opna rýmið þar sem flestir veggir eru léttir.
Eldhús: Bjart og vel skipulagt eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Innrétting er að mestu upprunaleg en vel um gengin. 
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og aðgengi út á lokaða netta austurverönd.
Svefnherbergi II: Gott herbergi sem hentar vel fyrir yngra mannfólkið eða sem vinnuaðstaða. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með rúmgóðri "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og góðri eldri innréttingu. Gluggi og opnanlegt fag. 
Þvottahús: Sérstök þvottaaðstaða og geymsla er innan íbúðar.
Geymsla: Geymslurými tilheyrir eigninni.
Sameign og lóð: Snyrtilegur stigagangur með tiltölulega nýlegu teppi. Í stigaganginum eru aðeins fjórar íbúðir, tvær á hvorri hæð. Sameiginlegur og snyrtilegur gróinn suðurgarður með grasflöt. Gott leiksvæði með leiktækjum að framanverðu.
Bílastæði: Fyrir framan húsið er einnig stórt og rúmgott bílastæði með nægum bílastæðum fyrir íbúa. 

VIÐHALD OG FRAMKVÆMDIR
Á árinu 2026 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á húsinu, meðal annars var farið í gluggaskipti í sameign, endurnýjun á þaki, þakköntum og þakrennum ásamt uppsetningu snjóvarna. Þessar framkvæmdir hafa verið greiddar að fullu af seljanda.
Íbúðinni sjálfri hefur verið vel viðhaldið þó innviðir séu að miklu leiti upprunalegir. Miklir möguleikar til breytinga fyrir þá sem vilja ráðast í slíkt verkefni. 

STAÐSETNING OG NÆRUMHVERFI
Laxakvísl 2 er í rólegu og grónu íbúðahverfi í Ártúnsholti þar sem stutt er í alla helstu þjónustu í Árbæ og Höfða, skóla og leikskóla, íþróttir og tómstundir. Nærumhverfið býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og hreyfingar, meðal annars í Elliðaárdalnum, auk þess sem Árbæjarsafn er í nágrenninu. Staðsetningin sameinar friðsælt íbúðaumhverfi með þægilegar samgöngur og tengingar við stofnbrautir.

LEIGUSAMNINGUR
Eignin er í útleigu til 31. mars 2027. Í íbúðinni búa góðir leigjendur sem hafa lýst yfir áhuga á að framlengja leigusamninginn, sé þess kostur. Eignin gæti því einnig hentað vel til fjárfestingar fyrir kaupendur sem hyggjast halda áfram útleigu.
Nánari upplýsingar um leigusamning og afhendingu veita fasteignasalar.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið salvor@remax.is
     Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is


-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
- Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
- Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is

Laxakvísl 2

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð93,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
73.900.000 kr.791 þ./m²
Byggingarár1984InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2043992Fasteignamat70.850.000 kr.Brunabótamat56.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑