Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 82,0 fm. og þar af er geymsla íbúðar 4,6 fm.
Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 58.600.000kr.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með fataskáp og parket á gólfi.
Stofu rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á góðar svalir úr stofunni.
Eldhús er opið við stofu með fallegri innréttingu, innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, span helluborð, gufugleypir og gott borðpláss. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parket á gólfi
Svefnherbregi III með fatsskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn. Inn á baðherbergi er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluti veggja.
Geymsla íbúðar er skráð 4,6fm og er á jarðhæð hússins.
Tjarnabraut 2
Glæsilegt staðsteypt hús sem er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi. Bílastæði eru malbikuð og á lóð er hjólaskýli.
Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Tjarnabraut 2
Staðsetning
Allar 14 myndir
Upp ↑












